Menntamál - 01.12.1935, Síða 76
218
menntAmál,
voru þetta fimleikáheiti, sem ætluð voru íeikfimiskennurum til
hjálpar við orðaval i leikfiminni. Bókina sendu þeir út um land
til leikfimiskennara og óskuðu jafnframt álits þeirra um fim-
ieikaheiti og gerð íslenzkrar fimleikabókar. Svar allra kennar-
anna var í þá átt, að kverið með heitunum væri ágætt, en hráð
nauðsyn væri á kennslubók í fimleikum. Þrátt fyrir þenna áhuga,
hafa fimleikakennarar ekki tekið sig saman um samningu slikr-
ar bókar og liðu svo fjögur ár, að ekkert heyrðist um kennslu-
bók í fimleikum. En síðastliðið ár sendir Aðalsteinn Haílsson
fimleikakennari í Reykjavík frá sér „Kennslubók i fimleikum“.
Bókin er llti hls. Bókarinnar var full þörf og mun hún vera
mjög kærkomin nemendum Aðalsteins frá Kennaraskólanum, sem
þurfa að kenna leikfimi að loknu kennaranámi. Aðalsteinn gerir
grein fyrir bókinni í löngum og ýtarlegum formála, og verður
tilgangi bókarinnar bezt lýst með ]jví að taka hér upp tvo smá-
kafla úr formálanum: „Fimleikakennarastarfið er í raun og veru
miklu ábyrgðarmeira en menn gera sér almennt grein fyrir, sér-
staklega á þetta við þá, sem kenna unglingum og börnum fim-
leika. Sá, sem hefir næga þekkingu, vit og vilja, til þess að gera
rétt og vel, getur gert ómetanlegt gagn með sinni kennslu, til
að viðhalda og efla líkamlega heilbrigði og til að koma i veg
fyrir margskonar missnúði í vexti uppvaxandi kynslóðar. Hins-
vegar getur árangurinn farið svo hörmulega í gagnstæða átt, ef
sá heldur á, sem þekkinguna vantar."
„Fimleikakennarinn þarf að hafa sem bezta og fullkomnasta
menntun. Hann þarf að hafa sterka og hljómfallega rödd, til
þess að geta skipað vel og skörulega fyrir. Það er mjög mikill
kostur, að kennarinn sé sjálfur góður í leikfimi og geti sýnt
nemendunum, hvernig eigi að gera æfingar, stökk o. fl. Auk
þess stendur sá betur að vigi að kenna það, sem hann getur
eða hefir getað sjálfur, heldur en hinn, sem aðeins veit hvernig
það á að gerast. Kennarinn verður að halda líkama sínum vel
við með stöðugri þjálfun."
Bók Aðalsteins er bæði þýdd og frumsamin. í bókinni eru tíma-
seðlar fyrir börn á öllum aldri, meðan þau eru í skóla. Nákvæm-
ar skýringar fylgja hverjum stundaseðli, svo að bókin er hand-
hæg hverjum þeim, er við fimleika fæst. Auk tímaseðla, s'em ætl-
aðir eru til notkunar í leilcfimissal, eru þar æfingar til að nota
handa börnum til hvildar í venjulegum kennslustofum, er þau
eru við munnlegt nám. Bók sína endar Aðalsteinn með tímaseðl-
um fyrir karlmenn allt til fertugs.
Að þessu sinni mun eg ekki gera að umtali stefnu þá i fim-