Menntamál - 01.10.1950, Síða 16

Menntamál - 01.10.1950, Síða 16
158 MENNTAMÁL er hér um að ræða viðfangsefni, sem miklu fleiri en við þurfum við að glíma. Móðurmálskennarar allra landa heyja í þessum efnum svipað stríð. En ég er ekki fyrir fram sannfærður um það, að á þessu sé mikið að græða. Enda þótt viðfangsefni stafsetningarkennara séu lík, er þó ávallt allmikill munur á. Móðurmálskennslan er í eðli sínu þjóð- leg, en ekki alþjóðleg, svo að beita þarf nokkuð mismun- andi aðferðum í hverju landi. Tillögur þær, sem ég vildi koma hér á framfæri, eru nokkuð annars eðlis en það að taka upp gagnrýnilaust háttu annarra þjóða í þessum efnum. Mér hefur skilizt, að meðal kennara væri allmikill áhugi á uppeldisfræðilegum efnum, en mér hefur virzt, að þessi áhugi væri nokkuð takmarkaður. Má vera, að mér mis- sýnist í þessu, en ég vil ekki láta hjá líða að koma þessum skoðunum mínum á framfæri. Einkum hefur mér virzt, að áhugi kennarastéttarinnar beinist að siðferðislegu upp- eldi, en síður að vitsmunalegu uppeldi. Nú ætti það að liggja í augum uppi, að þetta hvort tveggja verður að haldast í hendur, ef góður árangur á að fást. Einnig hefur mér sýnzt, að vandræðabörnin vektu meiri athygli þeirra, sem við uppeldi fást, en hin, sem engin vandræði stafa af. Þetta er, ef til vill, eðlilegt, en mig grunar, að það sé ekki alls kostar heppilegt. Meginstofn íslenzkra barna er ekki vandræðabörn í venjulegum skilningi þess orðs, og þau eiga það sannarlega skilið, að þeim sé fullur gaumur gefinn. Það, sem ég vildi með þessu segja, er, að orka kennarastéttarinnar fer allt of mikið í það að berjast við viðfangsefni, sem ég hef mjög takmarkaða trú á, að beri nokkurn verulegan árangur, og þessi orka er tekin frá viðfangsefnum, sem miklu sennilegra er, að einhver lausn fáist á. Með þessu vil ég þó engan veginn segja, að hinu viðfangsefninu skuli enginn gaumur gefinn, heldur að hér vanti verkaskiptingu meðal þeirra, er um þessi mál fjalla. Það skal að vísu játað, að ég hef orðið þess var, mér til

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.