Menntamál - 01.12.1955, Blaðsíða 105
MENNTAMÁL
287
Norrænt námskeið.
„Föreningen Norden" (Norrænafélagið í Svíþjóð) liafði viku nám-
skeið í sumar (31. júlí til 6. ágúst), fyrir kennara á Norðurlöndum.
Félagið á Bohusgárden, þar sem námsskeiðið var. Hann er í Uddevalla
í Bohuslán. har er heimavist, og lieldur félagið þar ýmis námskeið á
sumrin. Námskeiðið sóttu 75 kennarar, 10 frá hverju landi utan
Svíþjóðar, nema tveir frá íslandi: Árni Gunnarsson, kennari við
skóla ísaks Jónssonar og undirritaður.
Kennt var í fyrirlestrum, og fjölluðu þeir aðallega um efnið:
„Att liisa och försláKennsla fór fram á sænsku, norsku og dönsku,
einn tíma á dag. Ritari „Föreningen Norden" fil. mag. Rolatid Fern-
gren stjórnaði námskeiðinu.
Svfarnir fluttu fyrirlestra, og voru þeir um þessi efni:
1. Nágra synspunkter pá inláringsproblemet.
2. Láseprocessens psykologi.
3. Vilka krav bör stellas pá ett sunt program för láseundervisningen
i vore skoler.
4. Bohuslán i litteraturen.
5. Det nordiska inslaget i skoleundervisningen.
6. Láxelásningens metodik.
7. Att lása lyrik.
8. Láseböckernas sprák.
9. Att lása romaner och dramer.
10. Tidningslásning pá skolschemat.
11. Att slá i böcker.
12. Det fri bildingsarbetets studiemetodik.
Einn daginn var ferðazt um Bohuslán og skoðaðar bergristur á
granítklöppunum. Þær eru taldar vera frá bronsöld. Þær munu
vera á 400 stöðum í Bohuslán og hafa að geyma um 40 þúsund myncl-
ir, smærri og stærri.
Skemmtun var í lokin, og vorum við íslendingarnir þar liðléttir
með skemmtiefni, en við skemmtum okkur samt.
Valdimar Össurarson.