Menntamál - 01.08.1965, Page 101
MENNTAMÁL
211
nýjar brautir fyrir mannlega hugsun og víkkað sjóndeildar-
hring okkar, fyrir því er hún jafn mikilvægur þáttur í al-
mennu uppeldi og t. d. saga og bókmenntir. Eðlisfræðinni
ber skilyrðislaust rúm við hlið húmanistisku greinanna, sem
numdar erti sakir eigin verðleika, en ekki vegna hagnýts
gildis.
Við lifum umbrotatíma á sviði stærðfræði og eðlisfræði,
það fer fram endurmat allra verðmæta. Ný afstaða til þess-
ara námsgreina hefur í för með sér gagngera breytingu allt
frá smábarnakennslu til háskólanáms. Rauði þráðurinn í
hinum nýju hugmyndum er annars vegar viðleitni til meira
samhengis og dýpri skilnings og liins vegar viðurkenning á
því, að afstaða nemandans til námsgreinarinnar er mikil-
vægari en hin einstöktt þekkingaratriði, sem liann hefur lært:
viðurkenning á því, að hraðinn í þjóðfélagsþróuninni er svo
ör, að ekki er vitað, hver atriði einstaklingurinn kemur til
með að hafa not af síðar meir, og þess vegna sé það mikil-
vægara að þroska hann til að mæta nýjum óvæntum kröfum
en troða í hann þekkingarmolum. Sem sé, kennslan á að
ver Itjálp til sjálfsh jálpar. Umbrotatímar sem þessir gera sér-
staklega miklar kröfur til kennaranna, og þeir verða sífellt
að vera tilbúnir að auka þekkingu sína allan starfstíma sinn.
Þ. S.