Skírnir - 01.04.1920, Síða 16
94 Elias Lönnrot og Kalevala. [Skirnir
Finna*. En >Kalevala« nefndist landið, þar sem helztu
söguhetjurnar áttu heiraa.
Þessi fyrsta útgáfa flnska hetjuljóðasafnsins er venju-
lega nefnd »Gamla Kalevala«, til aðgreiningar frá næstu
útgáfunni, er birtist injög aukin og umbætt 14 árum síðar
(»Nýja Kalevala«). Hún liafði inni að balda 32 kvæði,
samtals 12078 Ijóðlínur. Var útkomu þesSa safns tekið með
hinum mesta fögnuði svo sem einhverjum mesta stórvið-
burði í sögu finskra bókmenta Margir, og þá fyrst og
fremst finskir bókmentafélagsmenn. hugðust þar sjá fagran
vísi merkilegrar þjóðlegrar þróunar, sem verða mundi, er
tímar liðu fram, fegursta blaðið í sögu flnskrar menningar,
sem og varð.
En Lönnrot áleit sízt sínu mikla verki lokið með þessu.
Svo víða sem hann hafði farið um bygðir Finnlands hafði
honum þó enn ekki unnist tími til að komast í samband
við ýmsa kvæðamenn, sem hann hafði haft spurnir af; auk
þess átti hann enn eftir að ferðast um rússneska hlutann
af Kyrjálalandi; en þar haföi hann mjög sterkt hugboð
um, að geymdust ljóða-fjársjóðir enn dýrmætari en þeir,.
er til þessa hafði tekist að grafa upp. Þess vegna hélt
hanD starfi sínu áfram hin næstu ár og kom þá margt í
leitirnar — fleira jafnvel en hann hafði nokkuru sinni
gert sér vonir um. Nú höfðu honum líka vakist
upp ýmsir áhugasamir aðstoðarmenn, er fóru um bygðirn-
ar eftir því sem hann lagði fyrir, og var honum hinn
mesti stuðningur að því. Það leið þá ekki heldur á löngu
áður en kvæðasafn hans hafði aukist svo að nýjum ljóð-
um og Ijóðabrotum, að íylsta þörf varð á nýrri, aukinni
og endurbættri, útgáfu og það þess heldur sem fyrsta út-
gáfan mátti heita uppgengin. En svo mörg járn hafði
Lönnrot i eldinum, að hin nýja úgáfa dróst til 1849.
Lönnrot. hafði sem sé ekki einskorðað sig við hetjuljóðin
sögulegu, heldur hafði hann jafnframt verið að vinna úr
hinu mikla safni sínu af kendarljóðum, orðskviðum og
gátum. Árið 1840 lét hann birtast á prenti afarmikið safn
finskra kendarljóða, er hann nefndi »Kanteletar« (þ- e-