Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.04.1920, Side 52

Skírnir - 01.04.1920, Side 52
130 Um fatnað. [Skirnir Á yfirliti þessu má sjá, að loftið er miklu hlýrra en dúkaefnin. Það er sexfalt lilýrra en ullin, 19 sinnum hlýrra en silki og 30 sinnum h ýrra en bómull eða hör. Þá sést það og, að hlýi’ndin spill- ast stórum við raka. Mest gætir þessa á ull, svo sem fyr er sagt, enda dregur hún mestan raka í sig. Hér er þó gert ráð fyrir því, að dúkaefnin hafi dregið í sig svo mikinn raka, sem þau mest mega, án þess að verða vot. Enn meir spillast hlýindin ef dúkarnir verða reglulega votir, og verður minst á það siðar. Verð dukaefna er mjög misjafnt. Bómull og hör eru langódýrust, þá ullin, en silkið dýrast. Það er auðvitað verðmunurinn, sem veldur því hve ódýru efnin eru mikið' notuð. Dúkar. Efni þau, sem hér hafa verið talin, eru venjulega kembd, spunnin og ofin í dúka. Telja má, að dúkar séu tvenns konar: ofnir dúkar með uppistöðu og fyrir- vafi, sem liggja eftir tveim hornréttum stefnum, og lykkjudúkar, sem gerðir eru úr lykkjum, sem grípa hverjar i aðra, en svo er í prjónlesi og hekluðum dúkum- Dúkagerðin hefir eigi aðeins þá þýðingu, að efnin haldist saman í hæfilega þykkum lögum, er hafa megi í föt. Dúkurinn fær ætið aðra eiginlegleika en dúkaefnin hafa, og fara þeir mjög eftir gerð hans. Eirkum breytast hlýindin að miklum mun. Þegar dúkaefnin eru spunnin, leggjast hárin eða trefjarnar í þræðinum aldrei fyllilega saman. MiJli þeirra verður ætíð mikið af smáurn m i 11 i b i 1 u m (millitrefja- bilum), sem eru fu 11 af lofti. Þetta loft milli trefjanna eykur hlýindin stórum, því hreyfing þess verður lítil í svo smáum og óreglulegum holum. Því snúðminni sem þráðurinn er, og því stæltara sem efnið er, þess meiri verða millibilin. Stæling ullarhára veldur því, að þi'áður úr ull er venjulega mjög holóttur. Þá er og yfirborð þráðanna misjafnt. Úr sumum efn~

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.