Valsblaðið - 01.05.1979, Page 4
Séra
Friðrik Friðriksson
Það er öllum Valsmönnum kunnugt, að Valur
var stofnaður af drengjum í unglingadeild KFUM
árið 1911 fyrir áeggjan hins mikilhæfa leiðtoga séra
Friðriks Friðrikssonar. Valsmenn hafaæsíðanlagt
mikla rækt við minningu hans og fer vel á því.
Það er ekki ætlun mín að rekja hér hvað séra
Friðrik gerði fyrir Val og hvers virði hann hefur
verið ungum Valsmönnum í gegnum árin. Þá sögu
kunna aðrir betur en ég. Hinsvegar datt mér það í
hug, þegar við vorum að spjalla saman um útkomu
þessa blaðs, að segja ykkur frá því, að sér Friðrik
hefur stofnað, eða rétta sagt á kveikjuna að því að
stofna fleiri félög en Val.
Það vita það kannski ekki margir í dag, að séra
Friðrik er nokkurskonar faðir knattspyrnunnar á
Akranesi og að fyrsta knattspyrnufélagið, sem þar
var stofnað, var stofnað fyrir hans áeggjan. Skal ég
nú segja ykkur frá því.
Þannig var, að séra Friðrik var mikið á Akranesi
á sínum tíma og hélt þá oft samkomur í
Akraneskirkju. Þangað flykktust ungir drengir til
að hlusta á hann og taka þátt í söng, en á þessum
samkomum var sungið fullum hálsi. Á þessum
árum voru þessar samkomur kærkomin tilbreyting
í annars tilbreytingarlausu lífi drengjanna á þessum
árum. Eins og þeir vita sem þekktu séra Friðrik og
sóttu samkomur hjá honum, þá var honum einkar
lagið að tala þannig til áheyranda sinna, að þeir
sátu sem bergnumdir og gleyptu í sig hvert orð sem
hann sagði.
Þannig var það með drengina, sem sátu í
kirkjunni á Akranesi og hlustuðu á þennan
mikilhæfa kennimann. Hann sagði þeim frá íþrótt,
sem hann nefndi knattspyrnu og hafði borist til
landsins, þá nokkrum árum áður og hann sagði
þeim frá Knattspyrnufélaginu Val, sem hann
átti þátt í að stofna með ungum drengjum í
Reykjavík, þá nokkrum árum áður. Hann útskýrði
fyrir þeim íþróttina og á hvern hátt hún kenndi
drengjum að vinna saman og ná settu marki. Hann
hvatti þá til að stofna félag og taka til við að iðka
knattspyrnu.
Það varð úr, að í maí árið 1922 söfnuðust
saman nokkrir drengir á aldrinum 10-14 ára í
kálgarðinum við Árnabæ og ræddum um stofnun
knattspyrnufélags. Það var samþykkt og síðar var
haldið inná Langasand, þar sem drengirnir ræddu
um nafn á félagið og rituðu þeir uppástungur sínar í
sandinn. Nafnið Kári hlaut flest atkvæði. Ogfyrsti
völlur hins nýstofnaða félags var einmitt
Langisandur. Eins og gefur að skilja, varð eitt hið
fyrsta verk hinna ungu drengja, að komast yfir
knött, en hann kostaði heilar 10 krónur og það var
mikið mál fyrir suma þeirra að útvega eina krónu til
kaupanna, en það tókst.
Ekki er ætlunin, að rekja nánarsögu knattspyrn-
unnar á Akranesi hér að þessu sinni, en hin síðari ár
er hún flestum kunn.
Ég á sjálfur margar og góðar minningar frá
samkomum með séra Friðriki í Frón á Akranesi,
sem við strákarnir sóttum og mér eru ennþá
minnisstæðar sögurnar sem hann sagði okkur og
hve hressilega við sungum „Áfram kristmenn
krossmenmn.“
H. Dan
2
I