Valsblaðið - 01.05.1979, Page 12
Ingi Björn: Knattspyrnan var yfir höfuö mjög léleg
í sumar. Þaö þarf að fara mörg ár aftur í tímann til
þess að finna jafn lélegt tímabil og var í ár. Ég er búinn
að vera alllengi í þessu og leyfi mér að fullyrða að það
hafi aldrei áður verið eins léleg knattspyrna hér. Mér
fannst ekki eitt einasta lið leika þannig að það verð-
skuldaði íslandsmeistaratitilinn. Það hafa alltaf verið
eitt eða tvö lið sem staðið hafa upp úr, en í sumar var
meðalmennskan allsráðandi.
Albert: Þetta er í sjálfu sér rétt hjá Inga Birni, en hver
er ástæðan? Finnst okkur þetta ekki af því að lið eins
og Valur og Akranes eru ekki eins góð og áður. Ég tel
að sum liðin hafi ekki verið verri en áður og nefni þar
t.d. Þrótt og Víking. Ég er hins vegar ósammála Inga
Birni að ekkert lið hafi átt titilinn skilið. Vestmanna-
eyingar voru mjög vel að honum komnir. Þeir voru
sterkir og börðust gífurlega vel.
Dýri: Já, það er örugglega mikið til í því sem Albert
var að segja. Valur og Akranes voru ekki eins sterk og
áður, og það varð til þess að önnur lið áttu meiri mögu-
leika og börðust betur en oft áður. Ég held að þegar á
keppnistímabilið er litið verði ekki annað sagt en að
leikirnir hafi verið skemmtilegir, - það kann hins vegar
vel að vera að knattspyrnulega hafi þeir ekki verið eins
góðir og áður.
Lexía sumarsins
Valsblaðið: Hvaða lœrdóm hafa Valsmenn dregið af
þessu sumri?
Bjarni: Við bítum að sjálfsögðu í skjaldarrendur og
látum slíkt og þvílíkt ekki koma fyrir aftur. Það er unnið
að því þessa dagana að leita að þjálfara, sem á að vera
betri þjálfari en við höfum haft. Ég vil ekki fara ítarlega
út i það á þessu stigi málsins, en það er markmið okkar
að ráða fyrir næsta keppnistímabil þjálfara sem hefur
mikla reynslu, og er harður af sér.
Valsblaðið: Erlendur eða innlendur þjálfari?
Bjarni: Erlendur þjálfari.
Ólafur: Það þarf að taka á og “keyra“ þetta upp
aftur hjá okkur. Það þýðir ekkert annað. Við verðum
að finna þjálfara sem er starfi sínu vaxinn, ekki bara
sem skipuleggjari á knattspyrnuvellinum, heldur þarf
hann að vera maður til þess að stjórna og starfa með
strákunum. f Valsliðinu eru nú mjög leikreyndir menn,
en þeir þurfa að hafa hershöfðingja yfir sér.
Bjarni: Það er líka greinilegt að leikmennirnir vilja
þannig þjálfara.
Ingi Björn: Við stefnum auðvitað að betri árangri og
ef það er “hershöfðingi“ sem við þurfum til þess að ná
honum, tökum við auðvitað við honum, fegins hendi. Ég
held, að aðallærdómurinn sem við höfum lært af þessu
keppnistímabili sé sá, að við verðum að hafa mjög
ákveðinn þjálfara, sem ekkert gefur eftir. Við sáum
margt fara úrskeiðis í sumar, og erum reynslunni rikari.
Hitt er svo annað mál, að það er ekki hlaupið að því
fyrir íslensk félög að skipta um þjálfara á miðju keppnis-
tímabili, eins og t.d. er gert í Englandi. Það þarf því að
vanda vel valið.
Albert: Það er búið að koma inn á þá punkta sem eru
vitanlega aðalatriðin. Sá lærdómur sem við getum
dregið af síðasta keppnistímabili er fyrst og fremst sá,
að það kemur ekkert að sjálfu sér. Við verðum að hafa
fyrir hlutunum og það þýðir ekki að vera of öruggur
með sig. Kannski gekk of vel hjá okkur 1978, miðað við
styrkleika liðsins þá. Ég er sannfærður um að þrátt fyrir
að Valur sigraði með svo miklum yfírburðum í íslands-
mótinu sem raun ber vitni, vorum við ekki með nálægt
því eins gott lið þá og árið 1977.
Ingi Björn: Þetta er alveg rétt hjá Albert.
Dýri: Já, það er augljóst að við þurfum að fáeinhvern
harðan þjálfara á okkur sem getur haldið liðinu saman
og stjórnað þvi. Við stjórnuðum þessu of miklu sjálfir
í sumar. Það er forsenda til þess að þjálfari nái árangri
að leikmennirinir beri virðingu fyrir honum. Það má
heldur ekki gleyma því að það er ef til vill ekki nóg að
ráða topp-þjálfara, heldur þarf að koma málum þannig
Mynd til vinstri
Valsblaðið Haftð þið farið
út í að greiða leikmönnum
peninga?
Mynd fyrir miðju
Ólafur.... Höfum reynt að
greiða útlagðan kostnað.
Mynd til hœgri
Bjarni..... Greiðslur munu
skapa meira aðhald að leik-
mönnum
10