Valsblaðið - 01.05.1979, Qupperneq 21
Jú, badminton er alveg úrvals
íþrótt. Badmintoniðkunin er mjög
alhliða hreyfing, þjálfar upp alla
Hkamshluta og bætir samvinnu
handar og auga. Svo er hægt að
iðka badminton fram í andlátið,
sagði Úlfar Þórðarson læknir.
Úlfar hóf að iðka badminton
árið 1944 og æfir ennþá einu
sinni til tvisvar í viku.
- Það var hann Baldvin Jónsson,
nú hæstaréttarlögmaður, sem
plataði mig út í þetta og ég hef
síður en svo séð eftir því að
hyrja í badminton.
Bæði er þetta skemmtileg íþrótt
og svo er félagsskapurinn, sem
ntaður kemst í, ekki síðri.
- Hvað gerir badmintonið að
skemmtilegri íþrótt?
- Það er erfitt að útskýra það
fyrir fólki, sem aldrei hefur
stundað íþróttina. En það er
ýmislegt, sem badmintonið hefur
fram yfir aðrar íþróttir, að mínu
viti.
Gat skotið rúðu á Hverfís-
götu frá Laugaveginum.
'Segir Úlfar Þórðarson, læknir,
sem hefur stundað badminton
síðan ’44.
Andstæðingarnir lenda aldrei í
navígi og verður því aldrei nein
gnmmd eða harka þeirra á milli.
Ef illa gengur geta menn aðeins
^ennt sjálfum sér um ófarirnar.
hetta er því „gentlemens sport“,
Þó án þess að um einhvern
^nömmuleik sé að ræða.
f’á má ekki gleyma því atriði,
sem rnér finnst hvað mikil-
Vægast. Það er hægt að stunda
hadmintonið næstum frá vöggu
til grafar. Það getur verið hæfi-
leg trimm-íþrótt fyrir alla aldurs-
hópa og það getur verið geysi-
hörð keppnisíþrótt, jafnvel ein-
hver sú erfiðasta sem til er.
Ég hef stundum sagt það í gamni
við félaga mína, að eina afsök-
unin, sem sé tekin gild ef þeir
mæta ekki á æfingu, sé að mæta
með dánarvottorð, sagði Úlfar
og skellihló.
Úlfar hefur lagt stund á fleiri
íþróttir um dagana. Á þriðja og
fjórða áratugunum var hann í
sundknattleik með Ægi og varð
hann íslandsmeistari í tíu ár í
röð með þeim. Hann var og í
sundknattleikslandsliðinu, sem
fór á Olympíuleikana í Berlín
árið 1936.
Þá keppti hann í langhlaupum
í nokkurn tíma, tók þátt í fyrsta
víðavangshlaupinu sínu árið
1919. Einnig var hann allgóður í
köstum, en keppti aldrei í þeim.
- Bestu þjálfunina í köstum fékk
ég sem smápeyi. Ég æfði mig
með snjókúlum og gat brotið
rúður niðri á Hverfisgötu ef ég
stóð á Laugaveginum. Ég stóð
bak við hús á Laugaveginum
og kastaði yfir það, svo stóðu
tveir strákar á horninu og sögðu
mér hvort ég hefði hitt, hversu
langt ég væri frá markinu.
Með þessu sló ég tvær flugur í
einu höggi: Ég fékk góða æfingu
í köstum og í spretthlaupi, ef ég
hitti, sagði Úlfar.
Axel Ammendrup.
19