Valsblaðið - 01.05.1979, Qupperneq 27
gengið vonum framar í vetur. Miklu skiptir að á þessu tímabili
samþykkti HSÍ breytingu í tekjuskiptingu 1. deildar liða. Var þetta
gert til reynslu þetta tímabil. Þetta fyrirkomulag breytir tekju-
streymi okkar Valsmanna. Við erum svo heppnir að eiga dyggan
hóp áhorfenda þannig að góð aðsókn að okkar leikjum skilar sér
nú beint til okkar í stað þess að áður skiptust tekjur milli allra liða
jafnt. Tekjurnar af aðgangseyri eru margfaldar miðað við fyrra ár.
Ætla má að tekjur okkar Valsmanna og Víkinga nemi ca. 1800-1900
þús. króna í hvorn hlut. Nú, auk þessara tekna koma í okkar hlut
opinberir styrkir, árgjöld, styrktargjöld, auglýsingatekjur af leik-
skrám, af auglýsingum á búningum og tekjur af Evrópukeppni
meistaraliða o.fl. Það lætur ekki fjarri að ársvelta deildarinnar verði
um 14-15 milljónir og rekstarkostnaður eitthvað nálægt því þannig
að útkoman verði örlítið réttu megin við núllið.
Sp: Nú hlýtur þitt hlutverk Þórður að vera tímafrekt og góða
menn þarftu með þér. Hvernig er liðið?
Þórður: Stjórnarliðið er mjög samstillt til átaka og veturinn er
einn sá léttasti fyrir mig þar eð tekist hefur að virkja alla
stjórnarmenn til starfa og dreifa þannig verkefnum og álagi.
Sp: Kemur þitt formannsstarf niður á kaupmennskunni?
Þórður: Já og nei. Að vísu fer í þetta tími en á móti kemur að
fjöldi Valsmanna hefur snúið sínum viðskiptum til Valgarðs og versla
þar meira eða minna í matinn t.d. hálft meistaraflokkslið karla.
Sp: Með það liðna í huga Þórður, muntu þá gefa kost á þér áfram
sem formaður.
Þórður: Næsta ár verð ég örugglega ekki formaður en gaman væri
að starfa með góðum formanni.
Sp: En komi nú staða upp í haust að ekki finnist formaður
hverju myndirðu svara ef til þín yrði leitað?
Þórður: Þá kem ég bara aftur.
Jón Pétur Jónsson er líklega öllum lesendum Valsblaðsins að góðu
kunnur. Hann hefur skotist upp á stjörnuhimininn í handboltanum
og stillt sér upp með helstu stórskyttum allra tíma. Jón hóf að æfa
og leika handbolta fyrir fáum árum, en sýndi fljótt góða takta, með
ástundun og miklum metnaði. Hefur honum tekist að ná landliðs-
sæti og er nú á förum til Þýskalands til að taka við af Ólafi bróður
sínum hjá Dankersen.
Jú ég fer til Þýskalands í júlí ásamt fjölskyldu minni og verð úti
líklegast 2 ár. Við erum nýkomin úr kynnisferð til félagsins og þetta
varð úr. Æfingaaðstaða Dankersen er frábær. Æft er í stórri höll,
þjálfarar og liðstjórar stjórna öllum æfingum sem standa í 2 klst.
Þessir menn skipta með sér verkum og æfingarnar er geisivel
skipulagðar. í ágúst verða 5 æfingar á viku, eingöngu þrekæfingar.
Farið verður í æfingakeppnisferðir í haust áður en átökin byrja. Nú fá
leikmenn mánaðarfrí áður en farið er í gang.
Sp: Það þarf auðvitað ekki að spyrja að því að Þjóðverjarnir
kunna að skipulegga bæði æfingar og mót?
Jón P: Já, fyrir 1. maí n.k. verða öll félög að hafa sínar áætlanir
tilbúnar. Þau vinna í nánu sambandi við þýska sambandið og lands-
25