Valsblaðið - 01.05.1979, Síða 34

Valsblaðið - 01.05.1979, Síða 34
-Hafa áhorfendur mikil áhrif á dómarann? ,,Yfirleítt er það nú svo að maður heyrir ekki til áhorfendanna. Auð- vitað getur það borizt til eyrna manni, þegar hrópað er Út af með dómarann; eða Drepið dómarann; og eitthvað í þeim dúr. En það hefur engin áhrif. Dómari verður að ein- beita sér svo mikið, að utanaðkom- andi truflun verður hann varla var við. Ég segi eins og er, í leik er ég fyrst og fremst í sambandi við leik- mennina á vellinum, en læt áhorf- endur lönd og leið. Ég hef verið blessunarlega laus við að lenda í ein- hverju múðri við leikmenn á vellin- um. Yfirleitt hef ég kynnst leik- mönnum af góðu einu, prúð- mennsku og íþróttamennsku. Auð- vitað hitnar mönnum oft í hamsi. Reiði þeirra beinist kannski gagn- vart dómara en strax að loknum leik er allt gleymt og grafið, og innst inni vita þeir ugglaust að dómarinn hafði á réttu að standa“. Blöðin og dómararnir -En hvaða áhrif hafa blöðin á dómara? „Það gildir nú það sama um blöð- in. Við dómarar verðum oft fyrir óvægilegri gagnrýni í blöðunum. við erum kannski skammaðir óbóta- skömmum fyrir dóma, sem við sjálf- ir erum handvissir um að voru vel af hendi leystir, svo erum við kannski hafðir upp til skýjanna eftir leiki, þegar við finnum að við áttum ekki góðan dag. Svo eru blöðin þannig innstillt, að þau ákveða gjarnan að þessi eða hinn dómarinn sé góður, en svo sé einhver annar dómari sem sé vondur. Þetta er annað hvort svart eða hvítt, ekkert þar á milli. Annars er það með þetta eins og annað. Það venst að vera skammað- ur í blöðunum, nú eða kannski að fá þar gott orð. Ég held þetta fari mest í taugarnar á þeim sem næst manni standa, ættingjum og fjölskyldunni. Maður er gjarnan spurður: Hvers- vegna í ósköpunum ertu að standa í þessu, maður, úr því þetta er svona vanþakklátt starf? Jú, ég svara því til að ég hafi ánægju af þessu frí- stundagamni. Og það er satt, ég hef haft gaman af að dæma, og það er ástæðan fyrir því að ég skuli hafa enzt til þessa. Sérstaklega hef ég haft gaman af handboltanum, og eftir að breytingin var gerð, þ.e. markadómarar hættu og tveir dóm- arar dæma saman, hefur þetta lagast mjög. Handboltinn finnst mér miklu hraðari og skemmtilegri en knatt- spyrnan. Hinsvegar er miklu erfið- ara að dæma knattspyrnuleik. Manni er sagt að dómari hlaupi 10 kílómetra í leik, svo það er eins gott að vera í góðri æfingu. En svo ég víki að blaðamönnun- um. Þeir hafa það fram yfir dómar- ann, að þeir geta lesið yfir sín skrif, eftir að þeir taka blaðið úr ritvélinni sinni. Oft finnst mér að þeir mættu lesa betur yfir það sem þeir segja. Og oft eru þeir ósammála, blaðamenn- irnir. Einn gefur dómara beztu eink- unn, meðan félagi hans á öðru blaði fer hinum háðulegustu orðum um dómarann“. Skrapað í sigurlið Við víkjum aftur talinu að keppnis- mennskunni með Val. „Það gekk á ýmsu hjá okkur. Gekk bæði vel og illa. Það sem bjargaði okkur þegar illa gekk, var þessi einstæði andi, sem hefur svo lengi loðað við Valsmenn. Ég man að einu sinni hafði Hilmar Magg. sá kraftmikli maður tilkynnt þátttöku Vals í íslandsmótinu í handknattleik utanhúss. Þetta var óðs manns æði. Ég hitti hann inn á Ármannsvelli. Það var útlent kvennalið að keppa forleik, en síðan áttu Valur og FH, aðalfélagið, að leika. Hilmar var vongóður og bjartsýnn eins og ævin- lega. Hann sagði að hann hefði skrapað í ágætt lið. Nú virtist eins og þessir menn hefðu hlaupið út undan sér. Ég var beðinn að vera með. Ég var hálflasinn eða var að jafna mig eftir veikindi. Ég gat ekki skorast undan, rauk heim eftir íþróttadót- inu. Kærastan mín og núverandi eiginkona, spurði undrandi hvað ég væri að gera. Ég ætla að lána þetta, sagði ég. Nú Hilmar hafði séð Árna Njálsson þarna í áhorfendahópnum, hann var gripinn. Nú Ali Baba, ég held hann hafi jafnvel verið þarna með barnavagn, hann var virkjaður, Valgeir Ársælsson, Sigurhans, Geir Hjartar, og loks var Sólmundur sótt- ur í markið. Hann var að vinna ein- hversstaðar í nágrenninu. Við vorum með 8 manna skrap gegn hin- um frægu handknattleiksstjörnum úr Firðinum. Og Valur vann á góða skapinu. Það er ekki að orðlengja að Valsmenn urðu íslandsmeistar- ar. Það kom engum eins á óvart og okkur sjálfum. Líklega hefur Hilmar driffjöður ekki verið neitt undrandi á þessu, hann er fæddur undir ein- hverri heillastjörnu sá piltur. Annars verð ég að segja að fram- farirnar í handknattleik og knatt- spyrnu eru gífurlegar, og grundvall- ast á miklu meiri æfingum og ástundun leikmanna. Ég veit frá fornu fari að ástundunin hefur allt að segja. f gamla daga var slegizt um að komast í lið. Þessi saga sem ég var að segja þér var undantekning frá þeirri reglu. Og þeir sem höfðu æft bezt, náðu lengzt. Svo einfalt var það. Eins er það með dómarana. Þeir þurfa að leggja hart að sér til að ná langt á sínu sviði. Sjálfur hef ég reynt það, og hef náð því að verða alþjóðadómari í tveim íþróttagrein- um. Þetta hefur gefið tækifæri til að dæma milli erlendra liða, sem er mikil reynsla fyrir dómara". Eiginkona Vals Benediktssonar, Þorbjörg Ólafsdóttir, er búin að hella í bollana. Það er orðið áliðið og við Valur búnir að sitja og spjalla lengi kvölds, búnir að missa af belli- brögðum forsetans í Washington í sjónvarpinu. í litlu herbergi inn af stofunni sé ég standa barnavöggu. „Já, hún tilheyrir dóttursyni okkar. Hann heitir raunar Valur líka og var skírður á fimmtugsafmælinu mínu 9. apríl í vor“. Þau Valur og Þorbjörg eiga þrjár dætur barna. Þau búa myndarlegu búi að Efsta- sundi 88, í miðri Þróttarnýlendunni. Þannig er það nú til dags, þræðir Valsmanna liggja um borgina alla og langt út fyrir hana. JBP. 32
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.