Heimilisvinurinn - 01.01.1904, Side 65

Heimilisvinurinn - 01.01.1904, Side 65
65 einlægum trúmönnum, (því vitanlega eru metodist- ar og „hermennirnir“ það opt), skuli skjátlast svona í þessu atriði stafar sennilega af því, að stuildum er því svo varið að síðasta áherzlu atriðið, sem leit- andi maður þarf að rækja, eða rjettara sagt, að síðasta sporið, sem ræður baráttu náðþyrstrar sálar til lykta er að hún kannist opinberlega við að Krist- ur sje eina athvarf sitt og eina hjálp, en það gjöra einmitt þeir, sem andvarpandi biðja Guð um náð í annara viðurvist. Það eru mjög mörg dæmi þess að friður Guðs og fullvissa um fyrirgefningu synd- anna fyllti hjarta mannsins í fyrsta skipti einmitt þegar hann í fyrsta skipti ákallaði Drottin í heyr- andi hljóði á bænasamkomu, því verður ekki neitað, en hin dæmin eru miklu fleiri, að friðurinn kom í hjartað við eitthvert annað tækifæri. Má jeg svo í tilefni af þessu segja við þig, sem andvarpar um frið við Guð: Vera má að þig bresti enn þrek og vilja til að kannast við frelsarann fyrir öðrum; viljir reyndar gjarnan sjálfur eignast lífið í Guði en ekki baka þjer þau óþægindi, sem stundum fylgja því að vitna fyrir öðrum. Sje svo, þá reyndu um fram allt að reka þetta viljaleysi í burtu, og reyndu með Guðs hjálp að ákalla Drottin svo aðr- ir heyri, til að brjóta ísinn, eða kannast við frelsara þinn greinilega á annan hátt. Það er ekki óliklegt að hjarta þitt fái þá þegar frið, en þó ekki fari svo, þá örvæntu samt ekki. Drottinn hefur nóg ráð, ef þjer er full alvara b. IJá er að varast að hún verði hvorki prjedikun nje langar skýringar. Sumum hættir til þess, þegar

x

Heimilisvinurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisvinurinn
https://timarit.is/publication/419

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.