Heimilisvinurinn - 01.01.1904, Blaðsíða 76
76
þar kristilegar samkomur, og þannig hjelt hann
margar samkomur árið 1880 í stærsta danssalnum
í París. Eptir íyrstu samkomuna þar skrifaði hann:
„Vjer vorum hálfhræddir við þessa fyrstu tilraun í
jafn illræmdu húsi. Það var fyrst í stað hálfundar-
legt að heyra lofsöngva Drottins hijóma þar, sem
áður hafði sjaldnast heyrzt annað en ljettúðugar
vísur og söngvar. En ánægjulegt var að sjá hversu
manngrúinn tók vel eptir orðinu. Vjer vorum hress-
ir og glaðir þegar vjer komum heim um kvöldið,
og sannfærðir nm að vjer þyrftum að halda shk-
ar samkomur í ýmsum hlutum borgarinnar.“ —
Seinna keypti missiónin ýmsa danssali, og iýðurinn
þyrptist saman til að heyra Guðs orð, þar sem áð-
ur höfðu verið spillingarbæli.
Mac Ali og kona hans fóru optast nær utan á
hverju ári til að hvíla sig og vekja áhuga á trúboð-
inu, og 1888 komu þau þannig bæði til Danmerk-
ur og Norvegs. Ýmsir vinir þeirra önnuðust starf-
ið á meðan. 1882 komu Moody og Sankey til Parisar,
og studdu þar mjög starfsemi þeirra. Moody prje-
dikaði rúma viku á hverju kvöldi í stærstu kirkju
prótestanta í París, og þyrptist að honum múgur
og margmenni eins og hvarvetna annarsstaðar.
Mac All gaf út skýrslu á ári hverju um starf-
semina, og auk þess urðu ýmsir til að skrifa um
það. Dr. L. W. Bacon gaf út smárit um þessa
missión, og kallar hana: „Hið dásamlega starf
Drottjns í Frakklandi," Dr, Sommervilie segirmeð-