Heimilisvinurinn - 01.01.1904, Page 79

Heimilisvinurinn - 01.01.1904, Page 79
79 þær öllum vel nema kaþólskum prestum, enda var þeim sárilla við starf Mac Alls. Þannig endaði þessi atorkusama mannsæfl, sem var algjörlega heiguð Drottni. Drottinn hafði blessað hann ríkulega, og notað hann til að leið- beina fjölda manna að krossinum á Golgata. „Mac Alls missiónin" hefur haldið áfram og vaxið að stórum mun síðustu árin. Formaður hennar er Louis Sautter, en 11 manna stjórnar- nefnd aðstoðar hann. Meðal þeirra eru Greig, Rovilly og Reveillaud, gamlir starfsbræður Mac AUs. Meðal annars á missiónin 2 missiónsskip, „Le bon messager" og „La bonne nouville." Á skipum þessum fara trúboðarnir fram og aptur um fljótin á Frakklandi, til að bjóða þeim, er búa á fljótsbökkunum til að koma á kristilegar samkom- ur. í miðhluta skipsins er stór salur, og eru þar haldnar tíðar samkomur, sem verða mörgum til blessunar, þótt kaþólskir klei'kar reyni af fremsta megni að spilla fyrir þessu trúboði. Siðustu árin hefur verið talað mikið um barátt- una milli guðlausrar vantrúar og hjátrúarfulli-ar páfakirkju í Frakklandi; sem betur fer eru þó fleiri hreyfingar þar í landi. Lútherska og reformerta kirkjudeildin eru báðar tiltölulega öflugar þar í landi, og gefa alveg ótrúlega mikið til lieimatrúboðs og heiðingjatrúboðs, og við hlið þeirra er svo þetta

x

Heimilisvinurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisvinurinn
https://timarit.is/publication/419

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.