Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1929, Page 5
JDUNN
Leiðir loftsins.
Eftir Skúla Skúlason.
I.
Mannkynið hefir brotið heilann um ráðgátur flugsins
síðan í forneskju. Flugið var staðreynd áður en menn-
irnir fóru að hugsa, fuglarnir óðu skýin, og í hreyfing-
um þeirra var öllu meiri tilbreyting en í hreyfingum
þeirra lífvera, sem bundnar voru láði og legi. En í ótal
aldir urðu mennirnir að láta sér nægja að hugsa um
flugið, án þess að framkvæma það. Goðsagnirnar um
flug er að finna í trú flestra ef ekki allra fornþjóða. —
Loki flýgur í fjaðurham Freyju, Ikaros fer um loftið á
vaxvængjum og eldlegir vagnar og fljúgandi drekar eru
algengir sagnagestir.
Fuglinn var fyrirmyndin. Tilraunir hugvitsmannanna
beindust í þá átt, að gera sér vængi og herma eftir
fuglunum. En allar þær tilraunir hafa mishepnast, alt
fram á þennan dag, enda er aðferðin ekki í samræmi
við vélastefnuna. Engum mundi detta í hug nú á tímum
að fara að smíða tæki til samgangna á landi og hafa
það á fjórum hreyfanlegum fótum, enda þótt hesturinn
hafi þótt góður til sinna nota áður, þar sem bifreið-
arnar fara nú. Fótatak hans og vængjablak fuglsins eru
hvorttveggja svo samsettar hreyfingar, að til þess að
líkja eftir þeim þyrfti vél, sem væri þúsund sinnum
margbrotnari en flugvélár nútímans eru. — Enda dettur
nú engum í hug framar að smíða flugvélar með hreyf-
anlegum vængjum. Flugvélin byggist á lögmáli snúnings-