Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1929, Blaðsíða 98
192
Ur hugárheimum.
IÐUNN
starf hins óeigingjarna. En þrátt fyrir það, tel ég þó
löngun til frægðar og frama og frægðarleit eitt af
þroskaskilyrðum æskumannsins, en listin er — að brjóta
ekki lögmál frægðarinnar. »Hver, sem upphefur sjálfan
sig, hann mun niðurlægður verða«. Þessi setning er
meira en trúboð. Hún er bláköld reynsla. Frægð ein-
staklings og frægð þjóðar þarf að vera verðskulduð,
annars er hún stopul. — Það er réttur dauðans, að ryðja
til á skeiðvelli lífsins. Þeir eldri falla úr fylkingu, hinir
yngri fylla í skörðin. Því hvílir frægðarorð næstu ára á
herðum æskunnar. Skyldur þeirrar kynslóðar, sem nú
ber hita og þunga dagsins, eru að búa æskumanninn
undir hlutverk sitt. Einn þáttur í þeim undirbúningi er
starf U. M. F., sem stendur að þessu móti, og þess
vegna eigum við öll að styrkja þau. Og það er bæn
mín og ósk, að æskulýður þessa lands eignist þrek og
manndóm til að lyfta frægð þjóðar og héraðs, og það er
bæn mín og ósk, að hann hugsi fyrst og fremst um að lýsa
upp hornið sitt, — að gera garðinn frægan. Og ég vil
enda orð mín með því að minna ykkur æskumenn á
það, að skyldur ykkar eru þungar — að taka við störf-
um framtíðarinnar, og seinna eigið þið að skila áf ykk-
ur í hendur næstu kynslóðar.
„Hvert augnablikskast, hvert æðaslag
er eilífðarbrot, þú ert krafinn til starfa.
Hvað vanstu drottins veröld til þarfa?
Þess verður þú spurður um sólarlag".
(E. B).
Stefán Jónsson.
Leiðrétting: Isleifur Jónsson kaupm. hefir verzlun sfna
á Hverfisgötu 59 — ekki 50, eins og misprentast hefir í auglís-
ingu frá honum í þessu hefti og síðasta. — Athugið auglýsing-
arnar!