Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1929, Page 9
ÍÐUNN
LeiÖir loftsins.
103
flugfræðingar Evrópu hristu höfuðin, er þessir tveir
Ameríkumenn komu og sögðust hafa haldið sér á lofti
í flugvél í 38 mínútur. Þá smíðuðu þeir bræður nýja
vél og fullkomnari, og í henni flaug Wilbur Wright í
21/2 klukkustund samfleytt, 125 km. leið, á gamlársdag
1908. Tók þetta langt fram því, sem Evrópumenn gátu
Nýtízku farþegaflugvél. Tvíþelija.
um það leyti, og nafn Wright-bræðranna varð frægt um
allan heim.
Þessi árin höfðu ýmsir Evrópumenn enn haldið áfram
tilraunum, og má þar fremstan nefna Santos Dumont,
sem hér er talinn með Evrópumönnum af því, að hann
gerði tilraunir sínar í Evrópu, þó að vísu væri hann
Brasilíumaður. Honum tókst að smáhoppa örstuttar
vegalengdir árið 1906, og sama ár flaug danskur maður,
Ellehammer, 30—40 metra á vél, sem hann hafði smíð-
að sjálfur. Er hann af sumum talinn fyrsti maðurinn,
sem lyfti sér frá jörðu í flugvél í Evrópu.