Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1929, Page 10
104
Leiðir loftsins.
IÐUNN
Frakkar urðu brátl
fremstir í fylkingu allra
flugmanna, og ástæðan
til þess var sennilega
helzt sú, að í Frakklandi
voru þeir hreyflar gerðir,
sem hentugastir voru til
flugs í þá daga. Hér skal
að eins nefndur einn
þessara manna, Bleriot,
því með afreki því, er
hann vann 25. júlí 1909,
er hann flaug yfir Ermar-
sund, hefir hann sett
tímamót í sögu flugsins.
Eftir það er farið að
leggja stund á flug fyrir
alvöru, og eftir það fer
almenningur að taka trú-
anlega spádómana um, að
flugið eigi að verða annað
og meira en hættuleikur
ofurhuga.
Gerð flugvélanna fyrir
20 árum var í flestu lík
því, sem hún er nú, þó
frágangurinn sé vitanlega
orðinn margfalt fullkomn-
ari og vélarnar sterkari.
<
Uppdráttur, er svnir flugleiðir milli I’eÍ
Tvær aðalgerðir voru þá komnar fram, einþekjan (mono-
plan) með einum væng og tvíþekjan (biplan) með tvenn-
um vængjum. Vélskrokkurinn sjálfur var orðinn aflangur
og hæðar- og hliðarstýrum komið fyrir á halanum; svif-