Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1929, Page 23
IÐUNN
List.
Við íslendingar erum gáf-
uð þjóð. Þó skortir okkur
mjög skilning á eðli listar yfir
höfuð, — ekki af því að við
höfum ekki skilyrði til þess
að geta skilið það, heldur
af því, að uppeldi okkar
hefir mjög stefnt í aðrar áttir.
Lítið hefir verið gert til þess
að opna augu okkar fyrir
eðli og gildi þess, sem fag-
urt er. Hinsvegar eru fæstir
svo hamingjusamir að vera
fæddir listamenn.
Tvent er það, sem ég hygg, að þeir, sem ekki hafa
skilning á eðli listar, geri sig aðallega seka um. Annað
er það, að þeir einangra listina um of, — binda sig alt
of mikið við eitthvert ákveðið gervi eða form listar.
Hitt er það, að þeir gera of mikið úr gildi listar yfir
höfuð, og má vera að það sé í raun réttri afleiðing af
hinu fyrnefnda. Eg minnist þess t. d., að ég átti einu
sinni tal við einn af hinum efnilegu rithöfundum okkar.
Hann er mjög ritfær maður og þar að auki skáld. Við
komumst eitthvað lítilsháttar út í trúmál og mintumst
meðal annars á prestana. Ég taldi prestana eiga fullan
tilverurétt. Þeir gætu verið mjög þarfir menn. Hann
fordæmdi þá, og kvað þá verri en einskisnýta. Hann
Grétar Fells.