Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1929, Page 58
152
Rabindra Nath Tagore í Vancouver.
IÐUNN
kallfæri við, munu fæstir geta gleymt hinni tignu og
rólegu ásýnd þessa aldna indverska hástéttarmanns. Sem
manntegund í líffræðilegum skilningi er þessi Hindút
eða high caste representative miklu tignara og fíngerðara
fyrirbrigði (Iíkamsform, látbragð, svipur) en vér Vestur-
landabúar eigum að venjast vor á meðal, og færir oss
heim sanninn um virðuleik menningar, sem er langtum
rótgrónari en vor og sennilega miklu ágætari í höfuð-
atriðum.
A sama hátt hlýtur persóna hans að standa oss fyrir
hugskotssjónum sem mjög fullkomið, en óaðgengilegt —
næstum heilagt — fagurrræðilegt tákn, og vér hlustum
á hinn fiðlukenda róm hans líkt og annarlegan söng.
Sem ljóðamaður hefir hann undursamlegt nýjungargildi
fyrir oss. Og þótt hin íburðarmikla skólaspeki hans
kunni að vera sneydd möguleikum til raungætra áhrifa
á hagi vora, þá munu þó strengleikar hans halda áfram
að veita oss óblandinn, upprunalegan fögnuð, eins og
vér þekkjum þá í Farfuglum, Ljóðfórnum, Blómverðinum
og Vaxandi tungli.
Vancouver B. C. Apríl 1929.
Halldór Kiljan Laxness.