Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1929, Page 63
IÐUNN
Sauönaut.
157
gefið er upp hér að framan, 2lU metri, sýnir allálitlega
stærð. Nú er vaxtarlagið þannig, að þau eru digur, holda-
mikil. Vigfús Sigurðsson Grænlandsfari fullyrðir, að Iæri
af nauti einu, er þeir félagar skutu sér til matar, hafi
ekki verið undir 35—40 kg. Ketið þekkist varla eða
ekki frá öðru nautaketi. Ullin er fíngerð og allmikil; í
„Loðkálfar" í dýragaröinum í New York.
dýragarðinum í New Vork hafa fengist 7 pd. (ensk) af
dýri, sem þó ekki er getið um að hafi verið fullvaxið.
Menn fullyrða, að ullin muni vera góð til að vinna úr,
en reynsla mun engin fyrir því; þeir, sem veiða dýrin,
þurfa á skinnunum að halda með loðnunni á, enda er
ekki setið við tóvinnu norður þar.
Eins og áður er getið, verjast þau hvaða óvini sem
er — nema tvífætta rándýrinu, manninum. í>au munu
vera heldur friðsöm í eðli sínu og ráðast ekki á. Beri