Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1929, Qupperneq 45
IÐUNN
Upfon Sinclair.
367
maður undanskilur bankareikning hans og drasl það
annað, sem honum er áhangandi. Gott dæmi um slíkt
fólk er t. d. Hinrik Ford, sem margur kannast við af
afspurn. Hann er upprunalega stéttflótta verkamaður eða
undanvillingur, sem varð biljónamæringur á nokkrum
árum á því að pranga lélegum vögnum inn á fátæka
stéttarbræður sína fyrir nokkur hundruð krónum hærra
verð en kostar að búa þá til. En á ári hverju leggur
Hinrik fram skýrslu um hinn andlega þroska sinn fyrir
heiminn í ítarlegum blaðaviðtölum á afmælisdegi sínum,
talar þar um stjórnmál, atvinnumál, trúmál og þó einkum
heimspeki, og er þar skemst frá að segja, að alt, sem
hann segir, er hið hégómlegasta þvaður, montið og upp-
skafningslegt, sem enginn maður með sæmilegri meðal-
upplýsingu getur lagt eyrun við nema af meðaumkunar-
blandinni skelfingu. — Andi gróðafíkninnar síast inn í
hverja stofnun þjóðfélagsins, frá blöðum og barnaskól-
um upp í háskóla og hæsturétti. I æsku flýta menn sér
að gleypa í sig eitthvert hrafl af kunnáttu, sem að því
miðar að gera þá hæfa að ganga út og pranga, en hefir
engan snertipunkt við hina æðri ákvörðun mannsins sem
líffræðilegrar heildar.
í Bandaríkjum Norður-Ameríku, sem er einskonar
jarðneskt himnaríki verziunarvaldsins, eru samankomnir í
undraverðum fullnaði og þaulræktaðir í n ta veldi allir
hinir djúprættustu ágallar, sem þetta skipulag er megn-
ugt um að áskapa mannkyninu. Nauðugur viljugur verð-
ur hver og einn að láta berast með straumnum inn í
hið fíflalega samkepnisfargan, þar sem hver Ieiksoppur
verður að síðustu píslarvottur. Þessi mannspilling er
skreytt með fögrum og heilögum nöfnum, kölluð þjóðar-
kostir og þjóðarsómi þessa lands og auðvitað margt
fleira. Hver pótentáti um sig reynir að finna þessu farg-