Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1929, Síða 49
ÍÐUNN
Upton Sinclair
371
ugra blaðablekkinga og annarar skoðanakúgunar. Hæsiu
sætin eru geymd liprustu fyrirsvarsmönnum einkaauðsins.
Þannig er það t. d. alkunna um Mr. Hoover, yfirburgeis
Bandaríkjanna, að hann »hefir um hálfan annan áratug
verið persónugervingur hins yfirgangsóða hramms ame-
rísku alríkisstefnunnar, og að það hefir hvergi á jarð-
kringlunni verið svo blóðugt verkefni að leysa né svo
skítugt hermdarverk að vinna fyrir amerískan einkaauð,
að Mr. Hoover hafi ekki verið þar kominn til þess að
reyna sig á því — altaf auðvitað í nafni upploginnar
mannúðar — hvort heldur var í Kína, Ungverjalandi,
Belgíu eða Suður-Ameríku. ]á, hann gerði meira að
segja sitt ítrasta til að »bjarga Rússlandi* á þeim tím-
um, sem alþýðan rússneska var að brjótast undan kúg-
urum sínum*. (English Labour Monthly, ]an. 1829).
4.
Það er gegn verzlunarvaldinu í þess eigin himnaríki,
Bandaríkjunum, þessari allsherjar-ófreskju, sem mest ógnar
viðgangi hins hvíta mannkyns, sem Upton Sinclair hefir
barist með hinu yfirnáttúrlega þreki afburðamannsins
síðan á unglingsárum. Hann hefir venjulega staðið uppi
einn sinna starfsbræðra, enda verst þokkaður allra skrif-
andi manna í Bandaríkjunum. En engar ógnanir frá
yfirvaldanna hálfu hafa nokkru sinni skotið honum skelk
í bringu. Engar mútur hafa verið þess um komnar að
fá hann til að strika út einn stafkrók af því, sem sann-
færing hans blés honum í brjóst.
Engin máttarstofnun auðvaldsins hefir verið svo trölls-
lega óvíg né ófrýnileg ásýndum, að hann hafi ekki ráð-
ist á hana af sömu blindu grimdinni og dýr, sem er að
verja unga sína, — þar komust engin griðmál að; hatur