Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1929, Blaðsíða 50
372
(Jpfon Sinclair.
IÐUNN
hans hefir verið mikið og heilagt; ekkert gat brotið
hann á bak aftur. Sigurvissa hans var aldrei sterkari,
hugur hans aldrei herskárri en eftir að hann hafði ein-
hversstaðar beðið ósigur. Hefir hann þá altaf unnið fyrir
gýg? Fjarri fer því. Þess sér hvarvetna stað, þ?.r sem
hönd hans hefir verið að verki. Ekkert stóðst við fyrir
hinum jötunefldu átökum hans. Sterkustu máttarviði
verzlunarvaldsins hefir hann hrist, svo hrikt hefir í allri
Ameríku og jarðskjálfti farið gegn um alt þjóðfélagið.
Með skarpskygni sinni, ótæmandi þekkingu, síbrennandi
hugsjónaeldi og ritlist hefir hann fengið því áorkað, að
augu miljóna í þessu landi hafa opnast fyrir sannindun-
um um böl það, sem féndur þessarar þjóðar, auðvalds-
drotnarnir og fótaþurkur þeirra, hafa eytt dollarabiljón-
unum í að ielja amerísku fólki trú um að væri dýrð
hennar. Hann hefir með öðrum orðum lagt í rústir fyrir
auðvaldinu nokkurra biljóna virði af heimsku.
Það er ómögulegt að gera neina áætlun um áhrifin
af ritum Upton Sinclairs, hvorki innan Ameríku né utan.
Þau hafa verið útgefin í miljónum eintaka og sjálfsagt
lesin svo tugum miljóna skiftir. Eitt einasta rit eftir
Upton Sinclair — og maður verður aldrei samur eftir.
Enginn ágóðatryltur seljandi getur verið svo forhertur,
að rödd lífsstefnunnar djúpt í brjósti hans hljóti ekki að
rumska við þá skírskotun til hins almenna mannlega,
sem rit Sinclairs flytja. Hin þjóðfélagslega upplýsingar-
starfsemi hans, enda þótt hún sé sjaldan í fræðilegu
formi, er meira virði en flestar bækur vísindalegar um
þau efni, því rödd hans nær langt út yfir hið takmark-
aða kallfæri vísindanna, — hann talar í einföldum, áþreif-
anlegum myndum og dæmum úr hversdagslífinu eins og
allir miklir fræðarar, snýr sér ekki til mentalýðsins ein-