Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1929, Side 57
IÐUNN
Uplon Sinclair.
379
Sinclair. Hugsanir hans fara mjög í öfuga átt við trúar-
brögðin, sem halda því fram, að Drottinn hafi sent oss
alt jarðneskt böl í þeim tilgangi að reyna okkur. Sam-
kvæmt trúnni á hér að vera sannkallaður táradalur, og
af því að Jesús Kristur var krossfestur, þá eigum við
helzt að láta krossfesta okkur líka. Ef við erum nógu
mikil rægsni og hundspott, meðan við tórum hér á jörð-
inni, mun oss sjálfsagt verða boðið upp á skorpusteik á
himnum, þegar við erum dauðir.
Barátta Upton Sinclairs fyrir velferðarmálum mann-
kynsins er hinsvegar jafn einbeitt og hugheil eins og
hann hefði aldrei frétt neitt þvílíkt, sem maðurinn væri
dauðlegur. Ast hans á tilvist mannsins er of rík til þess
að hann geti gefið sér tíma til að hugsa um nokkuð
eins fráleitt eins og neind mannsins. Þrá hans er ein,
sú, að lífið á þessari jörð megi verða samboðið þeirri
tign og því ágæti, sem hefir verið niður lagt í brjóst
mannsins, starf hans miðar alt að því að lyfta mann-
félagsheildinni til æðra og betra veruleiks, göfga og
fegra þá jörð, sem við lifum á. Slíkir menn eiga hvíld-
arlaust undir högg að sækja hjá makt myrkranna; þeir
minna á fornar hetjur, sem börðust við eitur-spýandi
dreka, eins og talað er um í helgum bókum . . .
Los Angeles, Calif., 3. september 1929.