Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1929, Qupperneq 58
IÐUNN
Myndin af Bólu-Hjálmari.
Einn af hinum yngri listamönnum landsins, herra Rík-
harður Jónsson, hefir gert mynd af Bólu-Hjálmari, sem
ég jafnvel hefi séð prentaða framan á bókum, og sem
hann hefir tekið eftir einhverjum Iýsingum á Hjálmari,
því sjálfur hefir listamaðurinn aldrei séð Bólu-Hjálmar.
Þegar ég var 10—12 ára, kom Bólu-Hjálmar að
Hrossanesi í Hólmi, og ég veitti honum töluverða eftir-
tekt. Móðir mín var heima og við yngri bræðurnir. Það
var um haustkvöld, og Hjálmari var boðið inn. í Krossa-
nesi var æfinlega tekið vel á móti skáldum og fræði-
mönnum. Meðan Hjálmar beið eftir kaffi, og fekk það^
sat hann á stóli við borð inni í húsinu, innar af bað-
stofunni, og talaði við móður mína, sem gekk um beina,
en var þó mest inni. Hann var boginn í herðum og
mjög baraxlaður; hárið var dökt og þunt og undir kjálk-
unum hafði hann skeggkraga, sem hefði mátt kalla hý-
ung; hann rakaði sig að öðru leyti. Ennið var fremur
lágt, og andlitið var fremur lítið. Augun lágu djúpt í
höfðinu; milli augabrúnarinnar og augans sjálfs var
djúpur dalur. Augun voru grá og hörð; hann skotraði
þeim á ská upp íil móður minnar, þegar hún var að
tala við hann, því hann var farinn að heyra hálfilla, en
hún stóð hinumegin við borðið, sem hann sat við. Kinn-
beinin voru há og nokkuð roðin; þau voru ekki stór,
því alt andlitið var smágert. Andlitið var magurt, og
fyrir neðan kinnbeinin drógust kinnarnar fremur inn,
svo það hefði mátt segja, að hann væri kinnfiskasoginn.
Hann seig mjög saman þar sem hann sat. Út á föt