Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1929, Side 62

Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1929, Side 62
384 Myndin af Bólu-Hjálmari. IÐUNN dáinn. — Svo lengi muna menn níðvísur um frændur eða nána ættingja. Þegar litið er á mynd Ríkharðs Jónssonar af Bólu- Hjálmari, þá sýnist myndin vera af velmegandi manni, sem jafnvel hefir haft mannaforráð, og aldrei verið í efa um, hvað hann ætti að borða næsta dag. Maður Ríkharðs horfir beint framan í heiminn og veit ekkert af allri þeirri óvild, sem Bólu-Hjálmar vissi af utan um sig og sem beygði hann niður. Það þarf ákaflega mik- inn styrk til að bera æfilanga óvild, án þess að bogna undir byrðinni. Hjá Hjálmari fylgdi þessu innri byrði: óvild hans til fjölda manna, sem ekki fer betur með manninn en hin áður nefnda. Myndin, sem hr. Ríkharður Jónsson hefir gert af Bólu-Hjálmari, er allsendis ólík þeim, sem hún á að vera af. Hans manni er vel í skinn komið, hann hefir góðan skeggvöxt og hárvöxt og veit sér einskis óþægilegs von af þeim, sem hann horfir í móti. —■ Það er engin hneisa fyrir Ríkharð Jónsson, þó hon- um hafi mistekist að gera mynd af manni, sem hann aldrei hefir séð, því það lof á hann skilið, að upp- hleyptu myndirnar af þeim mönnum, sem hafa setið fyrir honum, eru líkari mönnunum sjálfum en nokkrar aðrar myndir eftir hina yngri íslenzku listamenn, sem ég hefi séð. Jnc/r. Einarsson.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.