Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1929, Síða 77
JÐUNN
H eimskautafærsla.
399
reyndar einnig vera milli loftslagsbreytinga og sjávar-
borðsbreytinga af völdum hækUunar og lækkunar landa.
En eins og þegar hefir verið bent á, er breyting á hæð
ianda algerlega ónóg til að skýra loftslagsbreytingarnar.
Þessu er aftur á móti öðruvísi farið um heimskauta-
færslu, hvort heldur að litið er á loftslagsbreytingar eða
sjávarborðsbreytingar. Hér að framan hefir verið sagt
nokkuð frá loftslagsbreytingum. Þær hafa verið svo
miklar, að ætla mætti, að heimskautabeltin hafi ein-
hverntíma verið hitabelti jarðar, eða réttara sagt hlutar
úr þeim, en að heimskautabeltin hafi þá aftur á móti
verið á þeim slóðum, sem nú eru milli hvarfbauganna
eða í hitabeltinu. Fljótt á litið virðast sjávarborðsbreyt-
ingarnar ekki hafa verið eins miklar og vænta mátti
eftir þeirri heimskautafærslu, er svarað gæti til svo mik-
illa loftslagsbreytinga. Munurinn á þvermáli jarðar við
skautin og miðjarðarlínu er um 43 km. Land, sem flytt-
ist frá miðjarðarlínu til heimskautsins annarshvors, ætti
því að verða yfir 20 km. hærra yfir sjávarborð eftir
færsluna en það var áður. Eftir jurtagróðrinum að dæma,
sem hér hefir verið á miocen-tímanum, mætti ætla, að
ísland hafi verið þá að minsta kosti tuttugu breiddar-
stigum fjær heimskautinu nyrðra en það er nú. Sú færsla
mundi hafa verið nóg til að færa í kaf hæstu hnjúka á
landinu, ef að eins höfin hefðu orðið bunguvaxnari við
færsluna, en jarðskurnið ekki jafnframt hafist nokkuð.
En flóðöldunnar af völdum aðdráttarafls tungls og sólar
gætir ekki að eins í höfunum heldur einnig í jarðskurn-
inu. Talið er, að jarðskurnið ýmist hefjist eða falli um
50 cm. við miðjarðarlínu af þessum völdum. Þess vegna
hlýtur jarðskurnið að breyta lögun við heimskautafærslu.
Því er skiljanlegt, að sjávarborðsbreytinga af völdum heim-
skautafærslu gæti ekki eins mikið og annars mætti vænta.
4. Samband Ioftslags- og sjávarborðsbreytinga.
Sambandið milli loftslagsbreytinga og sjávarborðsbreyt-
inga kemur eðlilega því greinilegar í ljós sem nær dregur
vorum tíma. Þó er jafnvel hægt að greina þetta sam-