Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1929, Blaðsíða 84
406
Heimskautafærsla.
IÐUNN
Löndin eru einnig íhaldsöm á loftslagsbreytingar, ef
þannig mætti að orði Uomast. Þannig álita vísindamenn,
að er jökulbreiðan hyrfi af Grænlandi, myndi hún ekki
ná aftur neitt líkri útbreiðslu og nú, eins og loftslagi er
nú háttað á Grænlandi. Jökulbreiðan er því arfur frá
eldri tímum, nfl. jökultímanum. Þegar því eitthvert Iand
hefir verið svo nærri heimskauti, að landið hafi hulist
jökulbreiðu, hefir hún getað haldist á því, þó að það hafi
komist aftur á það breiddarstig, sem það hafði verið á
einhverntíma áður, jökullaust, og með tilíölulega heitu
loftslagi, er það var á leið frá heitari svæðum. Auk þess
hafa hafstraumar getað verið gjörólíkir á sama stað á
ýmsum tímum. Alt myndi þetta hafa það í för með sér,
að sjávarborðsminjar kaldari sjávar kæmust stundum
miklum mun hærra en sjávarborðsminjar heitari sjávar.
Loks álita ýmsir, að löndin ýmist svigni niður eða
hefjist, er jöklar ýmist aukast eða minka eða hverfa af
löndunum. Af því myndi einnig leiða það, að sjávar-
minjar frá köldum tímum gætu náð hærra en sjávar-
minjar heitari tíma. Menn benda á það, þessari skoðun
til stuðnings, að sjávarborðsminjar frá lokum jökultímans
í mörgum löndum, t. d. í Skandinavíu, séu lítið eitt
hærri inni í fjörðum en úti við mynni þeirra. En eins
og kunnugt er, hækkaði sjávarborð á hlýviðrisskeiðum
jökultímans og í lok hans, og eins á purpura-skeiðinu
hér og steinöld Norðurlanda, og styður það ekki þessa
skoðun. Breytingar þær, sem orðið hafa á innbyrðis af-
stöðu lands og sjávarborðs á þessum slóðum og nálæS'
um svæðum, eins og í Danmörku og sunnanvert við
Eystrasalt og Norðursjó, virðast fremur benda á það, að
þessi svæði séu að leggjast í fellingar eða þrýstast saman
í öldur og dældir, eins og bent var á hér að framan.
Það er þess vegna ekki hægt að vænta greinilegra
sambands milli sjávarborðsbreytinga og loftslagsbreyling3
af völdum heimskautafærslu en er, þegar litið er á alt
annað, sem jafnan hlýtur að valda breytingum á lofts-
lagi og hæð sjávarborðs og trufla þetta samband.
(Meira).
HáUon J. Helgason.