Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1929, Qupperneq 86
408
Nýjar bækur.
IDUNN
gervingu og llkingum, í kvæðum, því ljóðrænni eru þau,
því meiri skáldskapur er í þeim, því meiri áhrif hafa
þau; þau mótast djúpt í hug lesandans með sem minstri
fyrirhöfn og áreynslu af hans hálfu. Sálarlíf vort og lát-
bragð er það, sem vér þekkjum bezt af eiginni reynd,
og eiginlega það eina, sem vér skiljum beinlínis, og því
finnst oss hlutirnir færast nær oss, verða auðsýnilegri,
er yér gæðum þá mannlegu sálarlífi. —
A þessari öld hraðans og einbeitingarinnar verða menn
og í skáldskapnum að vera stuttorðir og gagnorðir, —
einbeita huganum að viðfangsefnunum og þrýsta efninu
saman, sem unnt er. Vér viljum hafa kraftfóður, — >ess-
enz«, en ekki undanrenningu. í því efni hafa íslenzk
skáld syndgað mjög. Þau hafa mörg hver teygt lopann
fram úr öllu hófi um lítið efni, þynnt út stemninguna með
of mikilli mælgi, ort löng kvæði um hugblæ, sem konia
mátti fyrir í nokkrum línum. En frekar hefir þetta lagazt
á seinni árum. Smekkvísi og snotur búningur ljóða hefir
einnig færzt í vöxt, sem betur fer. En þó er enn all-
víða mjög ábótavant. —
Davíð Stefánssyni hætti við því í fyrstu bókum sínum
að teygja lopann of mjög, en honum hefir farið mikið
fram í því efni, — er orðinn fastari fyrir og þjappar
efninu betur saman. Djúpskyggn skáldleg sýn er ekki aðal-
einkenni hans, heldur léttur og söngvinn blær, sem verður
víða að fyndni og glettum (sbr. »Bréfið hennar Stínu* 1
»Nýjum kvæðum«). Hann er nautnamaður og blessunar-
lega laus við allar siðferðisprédikanir, en dáir kannske
fullmikið syndina syndarinnar vegna — eða þeirrar feS'
urðar, sem hann ímyndar sér, að hún hafi til að bera-
Honum er sýnt um að lýsa löngun manna í nautnir, t. d-
í hinu fallega kvæði »Vodka« (brennivín), sem er þ°
frekar skemmt en bætt af ádeilunni, sem þar er. Mörð
kvæði eru falleg í bókinni; Davíð kann allar »kúnstir4
til þess, að eitthvað beri á því, sem hann segir vel, °3
tekur í þjónustu sína áhrifameðul eins og t. d. það, a
láta prenta einstakar línur langt frá öðrum, eins og hel
vísa væri. En þar eru líka lil fremur léttvæg langloku-
kvæði, eins og t. d. kvæðið um Neró, er hann spilar 3