Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1929, Page 95

Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1929, Page 95
IÐUNN Nýjar bækur. 417 hæðnin, — hin alkunna Jakobska kaldhæðni. Hún hefir aldrei notið sín betur en hér (sbr. sögulokin í Skulda- dögum). Fyrir því verða og sögurnar hver annari skemti- legri, en það er frekar nýlunda í okkar sagnagerð. Flestir þeirra, er sögur rita, ganga að því verki með grafalvarlegum hátíðarsvip, er oft stendur í öfugu hlut- falli við mikilvægi þess, sem þeir hafa að fara með. Jakob Thorarensen er blessunarlega laus við þenna stífa hátíðleik. Allar sögurnar í bók hans eru í raun og veru gamansögur, þótt greina megi víða þunga undiröldu beiskrar alvöru á bak við. Lítt verður þess vart, að hér sé viðvaningur á ferð. Þvert á móti dylst engum, að þessi höf. kann að byggja upp sögu. Einkum eru tvær styztu sögurnar svo vel bygðar, að þær minna að því leyti á sjálfan stórmeist- arann í smásagnagerð, Maupassant, þótt þær að öðru leyti séu ekki innviðamiklar. — Frásögn höf. er létt og djarfleg og stíllinn persónulegur — ekki ríkur að ljóð- rænum töfrum, en mergjaður og hressilegur. Veigamesta sagan er kannske »Ilmur vatnanna* — um hispursdrós eina úr höfuðstaðnum, nýtrúlofaða, sem fer upp í sveit til sumardvalar, ætlar að skemta sér af hjartans lyst, en gengur sig í sjálfheldu, svo hún á þaðan ekki afturkvæmt. En >Skuldadagar« standa henni ekki mikið að baki. Þar er sagt frá manni, sem siglir háan byr um hríð, en verður heldur en ekki að rifa seglin, þegar kernur að skuldadögunum. Sú saga er prýðilega sögð. Það hefir verið fundið henni til foráttu, að hún sé ólíkindaleg, ýkjublandin. Eg efast um, að svo sé. A braskárunum miklu spruttu upp margir »kynlegir kvistir*, og sennilega fór Reykjavík ekki alveg varhluta af þeim gróðri. Það er ástæða til að fagna útkomu þessarar bókar. Jakob Thorarensen hefir með kveðskap sínum aflað sér mikilla vinsælda um land alt. Þessar sögur verða fráleitt til að draga úr þeim vinsældum. Þetta er fyrsta bók höf. í óbundnu máli, en ólíklegt er, að það verði einnig sú síðasta, því meira mun hann eiga í pokahorninu af sama tæi. —

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.