Kirkjuritið - 01.09.1949, Blaðsíða 80
238
KERKJURITIÐ
Ég finn ástæðu til að endurtaka hér þá skoðun mína, að
ekki sé nægilegt, að auglýsa ferðir sem þessar á venjulegan
hátt eða eiga jafnvel undir að auglýsingar misfarist, heldur
verði að undirbúa þær með góðum fyrirvara og hafa sam-
vinnu við presta og sóknarnefndir og ennfremur hvem þann
félagsskap á svæðinu, sem vinnur að andlegum málum, menn-
ingar- og mannúðarmálum. Sömuleiðis hygg ég, að heppilegt
væri að senda fyrirlesara á þau mót, sem haldin væru til
eflingar slíkum málefnum.
Að endingu vil ég svo þekka öllum, bæði prestunum, konum
þeirra og öðrum, sem stuðluðu að því að gjöra okkur þessa
för ánægjulega.
Árni Árnason.
Vinarkveðja frá séra Finni Tulinius.
f þakklætisskyni fyrir ástúðina og skilninginn, kærleikann
og vináttuna, sem við „séra Finnur og frú Ulla“ áttum að
fagna við heimsókn okkar, hefi ég ákveðið, að senda öllum
íslenzkum prestum að gjöf bók mína: „Árni Helgason og
helgidagaprédikanir hans." Ég hefi ritað hana af ást til lands
föður míns og kristnilífs þess. Mig langar til, að bókin sé
á öllum prestsheimilum íslands og segi frá manni, sem hafði
hlotið menntun sína við Kaupmannahafnarháskóla, en unnið
allt sitt starf á íslandi og mat jafnan mikils samband milli
kirkna íslands og Danmerkur. Og mætti bókin lýsa því, að ég
elska ísland og að starfið fyrir andlegt samband milli kirkna
landa vorra er svalalindin tæra, er veitir mér þrótt til að vinna.
Með vinarkveðju.
Yðar
Finn Tulinius.
Bókin er nú komin í fjölda eintaka til Prestafélags íslands,
sem þakkar fyrir þessa góðu gjöf og er ljúft að minnast
hinna ágætu gesta. Geta prestar vitjað bókarinnar til afgreiðslu
félagsins.