Kirkjuritið - 01.09.1949, Blaðsíða 101
FRÉTTIR
259
Séra Árni Sigurðsson
Fríkirkjuprestur andaðist að St. Jósefsspítala hér í bænum
eftir rúmlega mánaðar legu 20. sept., 56 ára gamall.
Minningargreinar um þessa merku og mætu presta munu
verða birtar í næsta hefti.
Séra Halldór E. Johnson,
prestur frá Lundar í Manitoba og ritstjóri Brautarinnar,
ársrits Sambandskirkjunnar, kom hingað til lands í sumar.
Hyggst hann að dveljast næsta vetur í Vestmannaeyjum.
Nýtt frjálslynt tímarit.
Svo virðist sem frjálslyndi í kristindómsmálum eflist nú
mjög í Danmörku. Hefir nýlega verið stofnað þar tímarit, er
á að berjast gegn þröngsýni og afturhaldi í trúmálum og
standa vörð um heilbrigt kristnilíf feðranna og mæðranna.
Bæði prestar og leikmenn standa að tímaritinu, og er þess
vænzt, að útbreiðsla þess verði mjög mikil. í fyrstu heftunum
verða einkum greinar eftir lækna, guðfræðinga og kennara.
Séra Egill Fáfnis
hefir verið endurkjörinn forseti Hins evangelisk-lútherska
kirkjufélags íslendinga í Vesturheimi.
Séra Philip M. Pétursson
hefir verið kosinn forseti Sambandskirkju landa vorra í Vest-
urheimi. Séra Eyjólfur Melan gegndi því embætti næst á undan
honum.
Tala kristinna manna.
Samkvæmt manntali 1947 lifa nú á jörðunni 2500 miljónir
manna. Af þeim eru 1859 miljónir heiðingjar og 692 miljónir
kristnar. 321 miljón er rómverskkaþólsk, 217 miljónir mót-
mælendur og 144 miljónir grísk-kaþólskar.
Blztu Gamla testamentishandrit,
sem menn þekkja, eru nú rannsökuð vandlega. Þau fundust í
helli skammt frá Jeríkó. Verður skýrt frá þeim í næsta hefti.
Sameining lúterskra kirkjufélaga á Þýzkalandi.
Lútersku kirkjufélögin í Þýzkalandi hafa nú öll sameinast.
Pormaður sambandsins er dr. Hans Meiser yfirbiskup í Bæ-
heimi. Fyrsta sambandsþingið hófst með guðsþjónustu í Tóm-
asarkirkjunni í Leipzig í vetur, 28. jan. og prédikaði dr.