Kirkjuritið - 01.09.1949, Blaðsíða 52
210
KIRKJUROTÐ
sagði Matthías. Vér megum aldrei þreytast að birta þann
sannleika.
Vér þurfum að vaka betur á verðinum, taka betur á,
starfa meira, herða baráttuna við óvinaöflin, skapa heil-
brigðara trúarlíf og efla það, sem er gott og fagurt,
svo að hér verði „gróandi þjóðlíf með þverrandi tár,
sem þroskast á Guðsríkis braut.“
Ég vildi óska þess, að vér færum frá þessum samfundum
vorum einlægari, sterkari og samstilltari en um fram allt
betri lærisveinar Jesú Krists, auðugri að fórnarhug og trú
á algóðan Guð og föður vorn, sem er þjóð vorri athvarf
frá kyni til kyns.
Jafnframt því sem ég býð yður alla velkomna til presta-
stefnunnar, vil ég í mínu nafni og yðar allra senda söfn-
uðum landsins kveðjur vorar og blessunaróskir.
Útvarpið hefir gert oss kleift að láta þær kveðjur ber-
ast víðsvegar um landið. Heim til safnaðanna leitar hug-
urinn. Vér biðjum þess, að heill og blessun Guðs megi
búa með þeim öllum og auðga þá í því, sem er fagurt og
þóknanlegt fyrir augliti hans.
Kirkjan óskar þess að vera yður öllum kærleiksrík
móðir og vinarhönd Guðs í gleði og sorg.
Yfirlitsskýrsla biskups.
Þessu næst vil ég gefa yfirlit yfir störf og hag kirkjunnar
á hinu liðna sýnódusári.
Breytingar á starfsliði kirkjunnar hafa verið venju fremur
litlar á árinu. Enginn þjónandi prestur hefir látizt. En úr
hópi fyrrverandi presta eigum vér á bak að sjá tveim mætum
mönnum, sem oss öllum er að söknuður og eftirsjá, en það
eru séra Einar Thorlacius fyrrum prestur í Saurbæ á Hval-
fjarðarströnd og prófastur í Borgarfjarðarprófastsdæmi, er
andaðist hér í Reykjavík 2. janúar s. 1., og séra Vigfús Þórð-
arson f. prestur í Eydölum, er lézt hinn 17. júní s. 1.
Séra Einar Thorlacius var fæddur að öxnafelli í Eyjafirði