Kirkjuritið - 01.10.1972, Blaðsíða 9
6. Ljós dýrðarinnar er eilíft líf. Lóttu þig af hjarta eftir því langa og
kappkosta að neyta svo hvers Ijóssins, sem Guð þér gefur, að þú um
siðir njóta megir þess eilífa dýrðar Ijóssins.
I þriðja lagi hygg þú að: Guð aðgreindi Ijósið fró myrkrunum. Að-
greindu einnig verkin Ijóssins fró verkum myrkranna. Verkin Ijóssins
elska þú, og kostgœf daglega herklœðum Ijóssins að skrýðast. Verkin
myrkranna hata þú, og kasta þeim fró þér. Tjóðu þig við Ijósið Guðs
°rða í Ijóssins barna selskap, svo þú verðir með þeim Ijóssins þess
eilífa hluttakandi.
I fjórða móta hugleið þú það mín sól, þá Guð leit á Ijósið, sem hann
hafði skapað, þá sá hann það var gott. Þau orð standa við hvert Drott-
ins dagsverk, og þar það verður í einum stað undan fellt, þá stendur
það tvisvar við hitt annað strax þar á eftir. Kappkosta þú af öllu hjarta
' krafti Drottins og fyrir styrk hans náðar að lifa svo í þessu náttúrlega
Ijósinu og haga svo þínu skilningsljósi fyrir Guðs guðdómlegu Ijósi,
eftir Drottins orða Ijósi með skœrt Ijómandi trúarljósi, að það verði fyrir
augum Drottins gott haldið og metið. Svo muntu fyrir hans náð þess
eilífa dýrðarinnar Ijóss njótandi verða.
Mér virðist svo sem það fyrsta boðorðið Drottins hneigist að þessu
hans fyrsta dagsverki, því að líka svo sem himinn og jörð, þá svo fyrst
mynduð voru, svo sem efni og matería til allra þar af myndaðra hluta,
— svo er ótti Drottins og elska til hans efni og upphaf allrar vitsku og
°ndirstofn allra góðra verka, sem beföluð verða í öllum hinum boð-
orðunum. Og því hefur Lútherus sett fyrst í útleggingu hvers boðorðs-
ins þessi orð: Vér eigum að óttast og elska Guð. Og
svo sem Ijósið upplýsir og fagurt gjörir allt, hvað það á skín, svo gjör-
lr sönn kynning þess sanna Guðs, falin í þessum orðum: Eg erDrott-
'nn Guð þinn, — eitt stöðugt trúnaðartraust á hann og öll góð
verk, sem gjörð verða eftir boðorðum Drottins, lystileg og fögur, þótt
bau í sjálfum sér veik séu. En svo sem allt er ósýnilegt, ófagurt og ó-
sjálegt í myrkrinu, svo eru án Guðs kynningar, Guðs ótta og elsku og
trúarinnar öll vor góð verk fánýt, ófögur og ógild, hversu kostuleg sem
þau kunna að sýnast.
Ur DAGLEGRI IÐKUN AF ÖLLUM DROTTINS DAGSVERKUM eftir Hallgrím Pétursson.
199