Kirkjuritið - 01.10.1972, Side 66

Kirkjuritið - 01.10.1972, Side 66
Manndrápin í Burundi Enska kirkjan í Burundi hefir misst þriðjunginn af prestum sínum í eyð- ingarherferð á hendur Hutuœttflokkn- um. Sömu örlög hafa hlotið fjöldi hjúkrunarmanna, kennara og trú- boða á afskekktum stöðum. Sumir hafa verið skotnir á staðnum, en miklu fleiri hafa verið fiuttir á brott í vörubílum og ekkert framar til þeirra spurzt. Þessi fjöldamorð á Hutuœttflokknum, sem aðallega er bœndafólk, eru hefndaraðgerðir fyrir uppreisn þessa œttflokks í aprll s.l. gegn Tutsiœttflokknum, sem er í minnihluta í landinu, en fer með öll völd. Þessar hefndaraðgerðir hafa ekki beinzt að Evrópumönnum enn sem komið er. Kirkjan í Burundi hefir goldið mikið afhroð vegna ofsókna og fjöldamorða, en á hinn bóignn berasf fregnir af miklu þolgœði í þjáningu og píslarvœtti. Skólastjóri í barnaskóla nokkrum, sem leiddur var úf til aftöku, bað um nokkrar mínútur til ráðstöfunar og fékk þœr. Hann hóf þá að syngja sálm, sem á ensku hefst svo: „Out of my bondage, sorrow and night, Jesus, I come" (Laus úr fjötrum, nœt- ursorta og hryggð, kem ég, Jesús). Við lok fjórða versins hikuðu her- mennirnir, en skutu hann svo. Úr öðrum skóla tóku hermenn 50 drengi og 15 kennara, en létu þar ekki staðar numið, heldur komu daginn eftir og sóttu 70 drengi til viðbótar og fóru með þá á vörubílum sínum. Síðari hópurinn hafði hugboð um, að þeir yrðu sóttir, og vörðu nóttinni til bœna og viðbúnaðar. Þegar þeir voru settir á bílana, sungu þeir. Trúboði, sem ferðaðist til Buju- mura, var stöðvaður við vegatálma. Hermenn skutu manninn, sem f°r fyrir honum og spurðu trúboðann síð- an að því, hvað hann hefðist að- ,,Ég boða fagnaðarerindið," svaraði hann. „Segðu okkur þá eitthvað, sögðu hermennirnir. Hann gjörði þa® og þeir hlýddu á. Að því búnu sögðu þeir: „Hypjaðu þig", og skutu mann- inn, sem gekk á eftir honum. Kristinn maður í Burundi, er iýst hefir atburðum þar, segir, að í aiin þjáningunni sé einnig hœgt að koma auga á það, sem veitir von og hug9' un. „Orð Guðs á greiðan aðgan9 að skólunum og drengjunum, sern eftir eru. Hið andlega stríð er einni9 augljóst. Erki-óvinurinn er Satan- Hvernig geta menn orðið sem dýr, nema eitthvert voðaafl reki þa áfram? Biðjið fyrir okkur i guSþi°n„ ustum ykkar. Hvað vill Guð tala vi kirkju sína í öllum þessum viðbuið um? Hvert er hið spámannlega °r í öllu þessu? Þetta er tími óttalausfar boðunar." 256

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.