Kirkjuritið - 01.10.1972, Side 94

Kirkjuritið - 01.10.1972, Side 94
verður allt það fallegt, sem heilag- leikanum þjónar. Hér ó landi eru of víða plett- kaleikar. Þeir munu hafa komið upp á 19. öld. Margir þeirra eru tilkomnir fyrir milligöngu Þjóðminjasafnsins. Á fyrri hluta þessarar aldar lagði sú stofnun mikið kapp á að safna kal- eikum úr kirkjum og endurgalt þá með þessari vöru auk milligjafar, þegar um var að rœða meiriháttar gripi. Skylt er að geta þess til máls- bóta þessu tiltœki, að víða var á þeim tíma mjög ábótavant hirðu kirkna og gœzlu kirkjugripa. Nú hefur það stórbatnað og fullar horfur eru á, að það eigi eftir að komast í fyllsta lag. Þvl œttu söfnuðir nú að nota velmegun tímans til að afla sér góðra gripa I stað þessara plett- kaleika. Ekki skal mœlt með að eyða fé í skrautgripi, heldur gripi, sem eru ekta og vel formaðir. Nú á tlm- um er auðvelt að ná í þá, af hvaða gerð sem óskað er. Stœrð kaleika er mjög misjöfn. Sumir taka hálfan pott (liter), en venjulega minna. Þjónustukaleikar taka minna en matskeið. Patina Patina er brauðdiskur (diskos), sem jafnan fylgir kaleik. Hann er smíð- aður við hœfi kaleiksins þannig, að hann fellur niður ! kaleikinn, en barm- ar hans standa út yfir brún kaleiks- ins. Patinan er úr sama efni og kal- eikurinn og á hún einnig að vera gylluð að innan. I austurkirkjunni er víðast notað sýrt brauð, og tekur það meira rúm. Þv! eru patínur þar miklu stœrri og standa á fœti. Patinu fylgir lítill dúk- ur, ferhyrndur, og venjulega litlu stœrri en þvermál patinu. Oftast er hann stífur eins og spjald. Hann er ávallt prýddur baldýringu eða ut- saumi. Venjulega er hann úr fínu efni. Hann er lagður ofan á patin- una, þegar hún hefur verið notuð. Þessi dúkur mun vera til ! flestum kirkjum hérlendis. Auk hans er oft annað klœði, miklu stœrra. Það kall- ast „velum". Það er lagt yfir kaleik og patinu, sem sett er ofan á kaleik- inn, meðan það er ekki ! notkun i messunni, og síðan er það aftur lagt yfir, þegar þjónustu er lokið. Það er svo stórt, að það hylur alveg kaleik og patinu. Bakstursskrín í fornkirkjunni var ávallt helgað meira brauð en notað var ! mess- unni. Það var sent þeim, sem ekki komust ! messuna. Var það geymt í sérstöku íláti, sem nefndist PY^ (og stundum ciborium), en á íslenzka HUSLKER, bakstursskrín og síðat oblátuöskjur. [ fyrstu voru þessi !lat úr tré, en síðar úr silfri, gátu jafnvel verið úr gulli. Stundum voru skrin þessi höfð ! dúfulíki og voru þa hengd upp. Á 14. öld var gerðor um þau lokaður skápur (tabernacul- um), sem stóð á altari eða v°r byggður ! bakvegg altarisins. Á síð- ari tímum er Pyx venjulega með sama lagi og kaleikurinn, en með loki yf'r' sem prýtt er krossi. Arftaki þessa íláts eru oblátuöskjur þœr, sem nU eru ! öllum kirkjum hér á landi- Þœr eru hér v!ða úr tré. 284

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.