Jörð - 01.05.1945, Page 9
JÖRÐ
7
menn eins og Grundtvig og Sören Kierkegaard. Nöfn þeirra
eru á hvers manns vörurn. En slíkir menn eru samt ekki full-
trúar hins sérstakasta og þróttmesta í fari þjóðarinnar. Þegar
við lesum ræðu Kaj Munks um fóstru sína og bernskuheimili,
sjáum við bezt, úr hvers konar jarðvegi þessi maður með eld-
ingar á tungu var vaxinn. Hún er lýsing smábónda og konu
hans á liinu marflata Lálandi. Það er hversdagsleg saga, „strit
og gigt og meira strit og meiri gigt.“ En sannarlega viður-
kenndi Kaj Munk, hvað hann átti því uppeldi að þakka. Hug-
sjónir hans voru bjargfastar, gátu ekki orðið að málrófi, af því
að hann var dýru verði keyptur, líka á jarðneska vísu, fyrir
fórnarlund og trúmennsku þessara bláfátæku hjóna.
Danmörk er flatt land, og Danir eru fúsir að minnast þess
og segja í gamni, að þeir uni sér bezt á jafnsléttunni. Þess
vegna finnst mér viðeigandi áð nefna í sömu andránni sem
þrumuorð prédikarans og bardagann á hallartorgi Amalíu-
borgar eitt mjög óskáldlegt, flatneskjulegt og samt merkilegt
dæmi um far og riienningu Dana.
Fyrir tæpum þrjátíu árum heyrði eg brezkan mann flytja
erindi um danskan landbúnað og samvinnufélög. Hann sagði
meðal annars frá því, að ef fyrir kæmi, sem sjaldan væri, að
ensk húsmóðir keypti danskt egg, sem reyndist skemrnt, þá
þyrfti hún ekki annað en skrifa upp bláa stimpilinn á egginu
og afhenda kaupmanninum. Hún fengi óskemmt egg í staðinn,
það væri ekki orða vert. En ekki væri þar með búið. Stimpil-
númerið væri sent til Danmerkur, það segði til, hvar og hve-
nær og af hverjum eggið liefði verið afhent til sölu, málið
væri rannsakað út í æsar, seljandinn yrði að bæta fyrir eggið
og fengi áminningu, sem hann gleymdi ekki í bráð.
Ef þið ltugsið um þetta litla dæmi, getur það orðið lykill að
ýmsum leyndardómum og auðkennum danskrar menningar.
Það skýrir meðal annars, hvers vegna Danir hafa verið ótrúlega
samkeppnisfærir við aðrar þjóðir í friði, þrátt fyrir örðugustu
skilyrði, og hvers vegna svo torsótt er að beygja þá með ofbeldi.
Það skýrir á sinn hátt, hvers vegna þeir hlutu að rísa gegn
Nazistunum og hvernig þeir hafa hagað baráttu sinni. Það
sýnir, að þjóðin gerir ákaflega strangar kröfur til sjálfrar sín og