Jörð - 01.05.1945, Side 93
JORÐ
91
En til marks um hug vorn í garð frændþjóða vorra á Norður-
löndum skulu aðeins birtar yfirlýsingar 2. landsmóts ísl. stúd-
enta, er háð var þessa sörnu daga:
„Landsmót stúdenta, lialdið 18,—19. júní 1944 í Reykjavík, '
lýsir yfir því áliti sínu, að íslendingum beri að leita vinsam-
legrar samvinnu og viðkynningar við allar þjóðir.
Sérstaklega vill fundurinn lýsa yfir því, að hann telur, að
íslenzku þjóðinni beri að leggja stund á samvinnu við frænd-
þjóðirnar á Norðurlöndum í menningar- og viðskiptamálum
og rækja vel frændsemina við þær.“
Þetta sýnir hug vorn í garð Dana sem annarra Norðurlanda-
Jrjóða og af alhug tökum vér nú undir kveðju hins danska
skálds, Poul Sörensens, til vor, Jrar sem hann segir:
Ef Jrjóðir tvær skal tengja,
Jreim tryggðum hæfa ei bönd,
en aðeins hönd af alhug lögð
í aðra frjálsa liönd.
(M. Asg.)
Norræna stúdentasambandið
NORRÆNA STÚDENTASAMBANDIÐ var stofnað í Bromarf nálægt Hangö-
skaga á Finnlandi sumarið 1911 — rúnnnn hálfum mánuði áður en ófriður-
inn mikli hófst. Var það sprottið upp úr ófélagsbundinni hreyfingu meðal
menntaskólancma og stúdenta á Norðurlöndum, er haldið hafði „mót" nokkur
undanfarin ár sitt í hverju hinna norrænu landa. Uppliafsmaðurinn mun hafa
verið norskur menntaskólapiltur að nafni Smitt-Ingebrettsen, en fylgi lireyfing-
arinnar mun hafa vaxið einna örast í Danmörku og Svíar hafa orðið síðastir til.
I Finnlandi voru sænskumælandi stúdentar einir þátttakendur, enda barðist
þar norrænt þjóðerni fyrir lífi sínu miklu fremur gegn óbilgirni finnskumæl-
andi ofureflis en harðstjórn Rússa og „vó“ þó raunar jafnt á báðar hendur. -
Voru nú stofnaðar deildir til þátttöku í Sambandinu á öllum Norðurlöndum.
Islenzk deild var inynduð í Kaupmannahöfn nálægt áramótunum 1914—15 og
starfaði hún með miklu fjöri nokkur ár. í Reykjavík var stofnuð deild ári síðar
og gengust þeir fyrir því Steinþór Guðinundsson og Sveinn Sigurðsson, þá báðir
guðfræðistúdentar. Sú deild starfaði með töluverðu fjöri frarn yfir 1920, eða
þangað til Sambandið var lagt niður. Gekkst liún m. a. fyrir „norrænum kvöld-
um" fyrir almenning og mun hafa átt þátt í myndun fyrsta vísis að koncert-
hljómsveit í Reykjavík. Formaður deildarinnar var lengstum dr. Ágúst H.
Bjarnason, prófessor.