Jörð - 01.05.1945, Síða 35

Jörð - 01.05.1945, Síða 35
JÖRÐ 33 og hann fór að spyrja mig, hvað þessi sjór héti, sem við nú værum í. Ég var auðvitað á „hvínandi gati“. En nú var enginn landafræðistími, heldur var ég að komast út í löndin sjálf — og fór að skilja, hverjar afleiðingarnar væru af því að svíkjast um við lesturinn og fór að skammast mín fyrir það, enda þótt hinn ágæti skóiamaður sleppti nú öllum ávítum. En ég held, að Morten Hansen liafi orðið dálítið lireykinn af mér, þegar hann heimsótti mig í Hróarskeldu, þremur mánuðum síðar, og heyrði mig þá tala dönsku eins og ég væri þarlendur maður. Skoðun mín á Danmörku fór strax að breytast til hins betra, þegar við nálguðumst strendur Norður-Sjálands og héldum inn í Eyrarsund. Það var eins og að vera kominn inn í ein- hvern blíðan ævintýraheim: Samhangandi skógarlundir með fögrum byggingum, margar þeirra voru með rauðum þökum eða veggjum, sem fóru svo yndislega vel við skógarlaufið. Svo fjarlægðumst við ströndina, með Krónuborgarslot að baki, og lirátt var „kóngsins Kaupmannahöfn" framundan. Margir ís- lendingar, sem til Danmerkur liafa farið, hafa staðnæmzt þar og ekki farið lengra og hugmyndir þeiiæa um Danmörku og Dani verið bundnar við Hafnarbúa. Ég hélt burt frá Kaup- mannahöfn; var fyrst í gömlum, fornfrægum bæ, Hróarskeldu, en fór síðan um mikinn hluta Danmerkur og kynntist landinu og fólkinu í borgum og sveitum. FRÁ landfræðilegu sjónarmiði er Danmörk láglendi. Þar er engin hæð svo há, að hún nái 180 metrum yfir sjávarmál. Þó er landið svo tilbreytingarríkt og fjölskrúðugt, að furðu má telja, ýmist slétt eða mishæðótt og sums staðar jafnvel dálítil „fjöll“ úr hvítleitu kalki, stórfengleg borin sarnan við slétturn- at' í nánd. Hinar bröttu hæðir Jótlands og hæðir og daladrög Norður-Sjálands eða Suður-Fjóns, vaxnar lyngi eða skógum, sem spegla sig í lygnum vötnurn, eiga varla víða sinn líka í veröldinni. Smápollar eru þar tíðir, eftir bráðnaða jaka frá ís- aldartímunum, og eru nú skreyttir yndislegasta gróðri, sem hugsast getur, þar sem nykurrósin teygir blómin bleikrauð og bvít upp yfir vatnsflötinn. Urn allt eru frjóir akrar í regluleg- nm teigum, ýmsa vega litir eftir árstíðum; á gömlum landa- 3
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Jörð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jörð
https://timarit.is/publication/467

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.