Jörð - 01.05.1945, Page 26
24
JÖRÐ
Olc Björn Kraft og þrír þjóðræknisinnaðir stúdentar aðrir gengust fyrir „al-
mennum borgarafundi" í Grundtvigs Hus út af íslandsmálunum. Auðvitað sýndi
fundurinn ekki neitt meðaltal af dönsku hugarfari gagnvart íslandi, heldur
veiddist, til slíkra funda, aðallega froðan ofan af þjóðinni, ef svo mætti segja,
— buslara-afbrigði þjóðræknisinnaðra manna. Þarna var fjöldi jacketklæddra
broddborgara — ég var líka „á jacket", það er ekki þar fyrir! —, og sjálfsagt yfir-
leilt vel metnir menn, en er þeir voru þarna samankomnir, uppspanaðir af ein-
hliða ræðum, varð samfélag þcirra að æsingafundi, er litlu tauti varð við komið'.
Þá var það undir fundarlok, að fram kom alkunnur ungur stúdent, þá orðinn
arftaki Kiddes sem átrúnaðargoð íhalds- og þjóðræknisinnaðra ungra stúdenta,
maður, er setið hafði í miðstjórn Norræna Stúdentasambandsins og hafði þá, í
græskulausu gamni, hlotið hið Eddu-prúða uppnefni, Hengikjöftr, af hálfu
hans, er þessar línur ritar. Maður þessi var nú samt þegar þá dáður um alla
Danmörku og orð hans máttu sín mikils. Og hann tók upp merkið, er Kidde
hafði svo drengilega á loft brugðið, og hann snerti nteð merkisstönginni hinn út-
blásna belg þessa æsingafundar og hleypti vindinum út. Og búið var það. —
Móðir mín var á fundinum og hefur einatt síðan minnzt þessarar hugrökku en
rólegu og markvissu framkomu, cr sýndi á svo látlausan hátt þá skynsemi og
sanngirni, sem raunar hefur ávallt búið dönsku þjóðinni í brjósti, þó að al-
mennar sögulegar og landfræðilegar kringumstæður gerðu þessum ciginleikum
löngum erfitt fyrir að ráða afstöðunni til Islands. Mér hefur líka orðið maður
þessi minnisstæður. Nafn hans cr J. Christinas Möller.
LAMBEK, Kiddc og Christmas Möller voru vormenn með dönsku þjóðinni í af-
stöðu hennar til íslands. Eftir vor kemur sumar. Eftirfarandi grein hins
síðastnefnda, er hann, af vinsemd sinni og.þjónustulund við háar hugsjónir,
gcrði sér það ómak að skrifa fyrir Jörð í önnum, er flestum Islendingum mundi
hafa þótt ærnar til afsökunar, sýnir með svo mörgu öðru, stærra og smærra, að
sumarið er komið. — Islendingar fagna honum sem utanríkismálaráðherra.
Fáni íslands dreginn að hún í fyrsta sinn erlendis
(á norræna stúdenta-
mótinu á Lundsbergi
1917).
Sigfús Halldórs frá
Höfnuin dregur upp
fánann. Sveinn Jóns-
son (sbr. t. d. „Islenzk-
ur aðall" eftir Þór-
berg) sést betur; licld-
ur á flötum stráhatti
og staf.