Jörð - 01.05.1945, Page 36
34
JÖRÐ
merkjum, hlöðnum úr hnullungum, grær linotviður, brumber
og villtar, angandi rósir, svo að ég aðeins nefni þrjú nöfn af
þeim hundruðum jurta, sem þar eiga heirna.
Á slíkum stöðum er landið líkara blóma- og aldingarði en
nokkru öðru; svo að segja hver blettur er ræktaður og hefur
víða verið það öldum saman.
Við Islendingar eigum aðeins þúsund ára sögu að baki
okkar, og þykir það langur tínri, en Danir liafa byggt land sitt
í tíu þúsund ár eða jafnvel lengur. Og þeir fóru snemma að
rækta landið; um það bera mót af byggi í brenndum leir þög-
ult vitni frá steinaldartímum. Eldri og Yngri Steinöld, Brons-
öld, Járnöld og Víkingaöld — þessi nöfn greina ljóst frá þeim
tímabilum, sem Danir skipta menningarsögu sinni í. Hvílíkt
yndi og fróðleikur það er að ganga um hin ágætu fornminja-
söfn dönsku þjóðarinnar vita þeir einir, sem þeim eru kunn-
ugir. Þar má lengi una.
En það eru ekki einungis munir á söfnum, sent minna á for-
tíðina: Um allt landið má heita, að sé fjöldi fornra dysja og
hauga og Jrað svo, að sums staðar, t. d. á Jótlandi, setja forn-
mannahaugarnir sterkan svip á landslagið, Jtar sem Jreir bera
við sjóndeildarhringinn. Eru hin gömlu grafhýsi hauganna
(Jættestuer) mér minnisstæð. Er sem maður sé liorfinn langt
aftur í forneskju, Jregar maður gengur þar inn. Hin stærstu
Jreirra eru svo stór, að undrum sætir, 16—20 m. löng, og hlaðin
svo haglega, að sum hafa staðið, án Jress að haggast, í tvö til
þrjú þúsund ár. Vantar þar ekki annað en dólginn með al-
væpni, bláan sem liel og digran sem naut, til þess að gera frá-
sagnirnar um haugrofin í Fornaldarsögum Norðurlanda að
veruleika.
En enda þótt Danmörk sé þrautræktað land og Jrað svo, að
ókunnugum ferðamanni finnst hann varla mega stíga á annað
en ])jóðveginn, þá eru í sumum landshlutum ófrjósöm og
eyðileg landsvæði, lyngheiðar og foksendi, ósnert enn af allri
ræktunarmenningu. Samt teygir ræktun Dana hinar græðandi
hendur sínar svo langt nú orðið að Jjessum stöðum, að farið er
að ,,friða“ þá, til þess að seinni kynslóðum gefizt kostur á að
sjá, hvernig lúð danska land leit út í fyrndinni.