Jörð - 01.05.1945, Page 10

Jörð - 01.05.1945, Page 10
8 JORÐ einstaklinganna, og það sýnir óvenjulegan félagsþroska með frjálsu skipulagi. Þeir íslendingar, sem helzt hafa fengið hugmyndir sínar um Dani á Strikinu og í Tívólí, á gildaskálum og skemmtistöðum Hafnar, hafa kynnzt þeim jafnlítið sem flestir útlendingar kynnast Frökkum af yzta borði Parísarborgar. Það er reyndar satt, að Dönum þykir gott að skemmta sér og þeir virðast oft málskrafsmiklir og gjálífir. Samt munu flestir veita því eftir- tekt, að í skemmtunum sínum eru þeir venjulega hófsamir, gætnir og prúðir. Og ef við kynnumst þeim í starfi þeirra og daglegu lífi, munum við finna þar óvenjulega festu og jafn- vægi. Til þess að þetta litla land hafi getað veitt svo mörgu fólki góða afkomu hefur þurft bæði ræktun þjóðarinnar og jarðarinnar. Að svo rniklu leyti sem unnt er að lýsa heilli þjóð í einu orði, finnst mér Danir framar öllu vera traust þjóð. All- ar Norðurlandaþjóðirnar liafa eitthvað sérstakt sér til ágætis, og því er svo skemmtilegt að bera þær saman. Mér virðist Dan- ir vera heilsteyptasta þjóðin, jafnmenntaðastir, samstilltastir, þroskaðastir til samtaka og samheldni. Þetta samrýmist ágæt- lega jafnsléttunni og þéttbýlinu. Og því fer fjarri, að þeir séu svo léttlátir sem þeir virðast tilsýndar eða við augabragðs- kynni. Þeir eru bæði að eðlisfari og uppeldi dulir og seintekn- ir, tregir til þess að láta uppi tilfinningar sínar, tortryggnir gagnvart stórum orðum og skýjaborgum, slá oft mestu alvöru sinni upp í gaman, undir niðri skapmiklir og þykkjuþungir, en líka trygglyndir og ræktarsamir, þar sem þeir taka því. ÞÓTT Kristján tíundi sé konungur og höfði hærri á velli en allur lýðurinn, virðist mér hann kjörinn fulltrúi hins styrkasta og staðbezta í fari þjóðar sinnar, þess sem lætur minnst yfir sér, en er drýgst, þegar mest á reynir. Hann er í framgöngu heldur fálátur og þurr á manninn, í rauninni óframfærinn, ófús að flíka tillinningum sínum, smáglettinn í tilsvörum, hvorki hrifnæmur sjálfur né gjarn til þess að vekja hrifningu eða sækjast eftir lýðhylli. Hann er að engu leyti rómantískur í háttum né máli, miklu frernur hispurslaus og íburðarlaus. Vitundin um að vera arfborinn til ríkis, konung-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Jörð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jörð
https://timarit.is/publication/467

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.