Jörð - 01.05.1945, Side 84
82
JÖRÐ
vart innanríkismálum Danmerkur, spáir góðu um þess háttar
friðsamlega þróun, ekki hvað sízt, þegar jafnframt er atliuguð
sú hófsemd og sá stjórnmálaþroski, sem danska þjóðin liefur
af sér sýnt ekki aðeins nú í styrjöldinni, heldur og við fyrri
tækifæri, er vandi var á höndum og mikið lá við. *
Frelsisráðið liefur í yfirlýsingum sínum tekið það afdráttar-
laust fram, að það muni draga sig í hlé tafarlaust og landið er
orðið frjálst, til þess að rýma fyrir lögmætri, þingræðilegri
stjórn. Frelsisráðið liefur engan veginn í hyggju að reyna að
halda neinum völdum sem sjálfkjörin stjórn Danmerkur.
Frelsisráðið hefur enn fremur, víst fyrst allra frelsishreyf-
inga hinnar lierteknu Evrópu, þegar í Nóvember 1943 birt,
í einu leyni-blaðanna „De Frie Danske“, uppkast að áætlun
um fyrsta tímabilið eftir lok hernámsins, undir lausnarorðinu:
„Ef vér viljum vinna friðinn, verðum vér að undirbúa hann
í ófriðnum."
Aætlun þessari er svo í hóf stillt í hvívetna, að engum vafa
er undirorpið, að hún muni vinna fylgi fjölda margra meðal
dönsku þjóðarinnar. Einnig erlendis vakti áætlunin mikla at-
hygli, ekki hvað sízt í Englandi, og ensk blöð, m. a. „Times“,
fluttu útdrátt af henni og fóru mjög viðurkennandi orðum
um hana.
(Lokið í janúar 1945).
Samir við sig
IHINNI fróðlegu og skemmtilegu grein sinni, hér í heftinu, minnist Friðrik
Brekkan á það, hvað Suður-Jótar hafi haldið gamansemi sinni í hinni
þungu raun styrjaldarinnar miklu 1914—1918. Jafnframt getur hann þess, að
Suður-Jótar muni ekki frábrugðnir öðrum Dönum í þVí efni, enda sanna það
ótal kýmilegar smáfrásögur úr núverandi átökum. Hér er ofurlítið dæmi:
Danskur bóksali var einhverju sinni handtekinn fyrir að hafa sett út í búðar-
gluggann myndir af Hitler og Mussolini og á milli jjeirra bók Victors Hugos:
„Vesalingarnir"!
Annar danskur bóksali efndi til sýningar í glugga sínum á sérstakri tegund
lindarpenna og letraði þar á spjald: „Með þessum pennum verður friðurinn
tindirritaður." Penninp bar nafnið Big Ben! (Borgarklukka Lundúna.)