Prestafélagsritið - 01.01.1919, Blaðsíða 6
2
Ritstjórinn:
að felast, að tímaritið vill vinna að því markmiði, serra
Prestafélagið hefir sett sér, sem er það, að »vera málsvarr
hinnar íslenzku prestasléttar, efla hag og sóma hennar
inn á við og út á við, og glæða áhuga presta á öllu því,
er að starfi þeirra lýtur og samvinnu þeirra í andlegum
málum þjóðarinnar«. En jafnframt því að vera einn liður-
inn í starfsemi Prestafélagsins, með því að sluðla að því,.
að þeir menn, sem sérstaklega eru til þess kallaðir að'
vinna að kristindóms- og kirkjumálum þjóðar vorrar, getf
betur notið kraíta sinna í þjónustu þeirra mála, en að*
undanförnu hefir átt sér stað, vill ritið einnig ná til leik-
manna safnaðanna. Pað vill vera sem alira flestum af
þeim, er við kristindóms- og kirkjumálin fást, eða um
þau mál hugsa, til einhverrar hjálpar, vill Ieitast við að
efla áhuga manna og skilning á þeim málum, og eftir
veikri getu hlynna að þeim í hugum þeirra inanna, er
ritið vilja lesa.
Hvernig ritinu muni takast að ná þessum tilgangi sín^
um, verður reynslan að skera úr. Ritstjórinn hefir hug á
að fá sem flesta til að skrifa i ritið, og allan vilja á að
láta það glæða samvinnu og bróðurhug meðal leiðtoga og
leikmanna safnaða vorra. Ritstjórinn vill ekki binda sig á,
klafa neinnar ákveðinnar stefnu innan þjóðkirkju vorrar,.
en ætlar sér að láta ritið bera það eitt fram, sem hann
hyggur að sé kristindómi og kirkju lands vors á einhvern
hátt til gagns að birt sé og athugað, hvort sem það að<
svo komnu hefir öðlast mikið eða litið f}dgi eins eða ann-
ars flokks eða stefnu. Pví of mörg eru árin liðin síðan
sá boðskapur var íluttur af postula Krists, að Guði væri
»þóknanlegur í hverri þjóð sá, er hann óttast og stundar
réttlæti« (Post. 10, 34. n.), til þess að oss sæmi á 20. öld-
inni eftir margvíslega reynslu síðustu hörmunga, að blása
að sundrungareldi með óbilgjörnum dómum út af ein-
hverjum skoðanamun, þótt til séu menn vor á meðal, sem
leyfa sér að ferðast á öðrum hugsanabrautum en þeim,
sem troðnar eru. Parfara verk virðist hitt, að sameina,