Prestafélagsritið - 01.01.1919, Blaðsíða 86
82 Ásmundur Guðmundsson:
Veljið hann einan, felið honum alt og verið ekki hrædd
við að taka afleiðingunum af þ\í. Hann sem fæðir fugl-
ana í loftinu og býr blómin á jörðunni, hann mun vissu-
lega einnig sjá vegi fyrir yður. Trú á hann og kvíði og
áhyggjur geta ekki farið saman.
Svipað er að segja um afstöðu vora til konu og barna,
ættingja og vina, þetta innilega samband, sem á sífelt að
gefa oss meiri og meiri þroska í göfgi og kærleika. Fátt
bjTr yfir meira afli til þess að lyfta oss nálægt guði eða
hjálpar oss betur til þess að skilja leyndardóma lians, ef
alt það samlíf er helgað honum einum. En fari svo að
það verði ekki, reynist heimilið oss öllu heldur fjötur um.
fót þegar vér viljum ganga á guðs vegum, komi að því,.
að annarsvegar standi faðir og móðir, kona og börn og
bræður og systur, og hinsvegar guð og vilji hans, svo að
um þelta tvent hljóti að velja, — þá má ekki hika við að
leysa öll bönd til þess að þjóna guði einum, þá á að
elska liann og hata hin, eins og Jesús orðaði það, þ. e.
a. s. hata það hjá þeim, sem rís upp á móti guðs vilja,
enda þótt oss haldi engu síður áfram að þykja ósegj-
anlega vænt um þau sjálf.
Þá verða einnig auðskildari orðin, að vér skulum ekki
rísa öndverð gegn meingjörðamönnunum. Pað er ekki
hugsunin, að vér skulum bókstaflega í hvert sinn sem
slegið kann að vera á aðra kinnina bjóða hina, heldur
hitt, að vér skulum taka hverri mótgerð og móðgun með
hógfærð og kærleika. Því að þegar oss er gert eitthvað á
móti, þá er að eins um tvent að velja, annaðhvort tökum
vér því með kærleika, eða vér tökum því ekki með kær-
leika. Annaðhvort veljum vér guð, sem er kærleikur, eða
vér snúum við honum bakinu. En lögmál vort í lifinu á
ekki að vera neilt annað en guð og vilji hans.
Þegar vér höfum gert oss þannig grein fyrir þessum
siðferðisboðum Jesú, þegar vér höfum komið auga á, að
kenningin er frá guði og opinberar oss vilja hans, þá
sjáum vér, að öll ósainliljóðan hverfur á milli þeirra og