Prestafélagsritið - 01.01.1923, Qupperneq 159
154
Erlendar bækur.
Prestafélagsritið.
Mjög fögur er og t. d. síðasta samræða Páls og Ananíasar.
Hæpnar munu sumar skýringar höfundar, frá sögulegu sjónarmiði,
enda tekur höf. fram í eftirmála, að hann hafi eigi haft það fyrir augum.
„Landsmálið" er fagurt og fágað hjá skáldinu, og nokkur orð eru þar
með svo fornum blæ, að vel mundu sóma sem nýyrði í voru máli.
%
J. M. Platou: „Tidens tanker“. — 112 bls. Steenske forlag.
Kria 1922.
Bók þessi er þann veg komin, að höfundur hefir gefið út, samkvæmt
áskorun, 25 greinar, er hann hefir áður ritað í norsk blöð um trúmál.
Og ræðir þar um ýmsar spurningar nútíðarmanna á því sviði.
Bókin hefir kosti og galla blaðagreina. Víða komið við og margt vel
sagt og læsilegt, en fátt rækilegt.
Dr. O. Hallesby: „I Korsets 1ys“. — 186 bls. Lutherstiftelsens
forlag. Kria 1922.
Höfundur er hinn kunni foringi eldri guðfræðistefnunnar í Noregi.
Birtir hann hér 12 erindi og fyrirlestra, er hann hefir flutt á trúmála-
fundum. Aldrei dylst það hver áhugamaður dr. Hallesby er. Og betur
tekst honum að prédika oss guðrækni og sálubót, en rita ádeilugreinar.
Bók þessi er eldheitur vitnisburður trúaðs manns um afturhvarf og fyrir-
gefning syndanna fyrir Jesú Krist. Sérstaklega vil eg benda á frásögn
höfundar um sálarstríð og afturhvarf sjálfs sín, bls. 49—54. Þar er talað
frá hjartanu til hjartans. Þ. Br.
Dr. O. Hallesby: „En aandsfyldt kristen". 3. oplag. — Kria 1922.
Forlagt av Lutherstiftelsens boghandel.
Kver þetta, sem er aðeins 16 bls., er erindi, flutt af höf. til að leið-
rétta misskilning, er hann telur að eigi sér stað meðal kristins fólks í
Noregi um „fylling heilags anda“, og greinargerð hans fyrir því, hvað það
sé, að vera „fyltur Guðs anda“, og hver séu almenn einkenni kristins
manns með „fylling andans".
Sami: „For Herrens ansigt. Korte prækener". — 3. oplag. — Kria
1922. Lutherstiftelsens forlag.
Þessi bók er líka lítið rit, 40 bls., 15 mjög stuttar sunnudagahugleið-
ingar. Er þar margt skarplega og ágætlega mælt, í stuttum og skýrum
setningum.
Sami: „Synden i kristelig lys“. 2. oplag. Kria 1922. Lutherstift-
elsens forlag. — 67 bls.
Hér eru tekin til meðferðar: Uppruni, eðli, áhrif og afleiðingar synd-
arinnar, og helztu skoðanir og kenningar, sem uppi hafa verið, og eru