Eimreiðin - 01.01.1924, Qupperneq 32
28
RÆÐA Á ÁLFASKEIÐI
EIMREI»iN
hríðir«. Umhverfis oss er fegurð og unaður í álögum, e^a
réttara sagt vér erum í álögum þangað til einhver opnar a
oss augun og sýnir oss það, sem vér áður gengum blindand'
og tilfinningarlausir fram hjá. Reynið þið ungmennafélagar a^
leysa hver annan úr þessum álögum. Einsetjið ykkur að kynn'
ast út í æsar hverjum fögrum bletti í sveitinni ykkar og Sera
ykkur ljóst í hverju ágæti hans er fólgið. Reynið að sýna oS
sanna hvað einkennilegt eða fagurt er í línum, lögun e^a
litum þessa eða hins fells eða kletts eða foss eða hvawnis-
»Leitið og munuð þér finna«. — Safnið öllum örnefnum
sveitarinnar, skýrið þau og ræðið á félagsfundum. Safnið þj°ð'
sögum öllum og munnmælum, er tengd eru við tiltekna staði-
Safnið mannlýsingum af merkum mönnum og einkennileSulT1
í sveit ykkar. Semjið lýsingar á vinnubrögðum og verkfaerum>
sem þar tíðkast, takið hvert verk og verkfæri til umræðu, °S
vitið hvort ykkur hugkvæmist ekki betri aðferðir og áhöld etl
þið hafið vanist. Kynnið ykkur allan fjárhag sveitarinnar oQ
ræðið um, hvað gera mætti honum til bóta. Hugsið upp
til að gera heimilislífið sem fjörugast og farsælast. En hvaða
mál sem þið takið til meðferðar, þá hafið það hugfast, a^
djúpt þarf að grafa til þess að finna það sem best er, því a^
alt er Iéttvægast sem ofan á flýtur. Eg vona að þið sjáið uu,
að í sveitinni ykkar eru óþrjótandi rannsóknarefni, sem Þ*^
gætuð haft gagn og yndi af að taka upp, hver það sem hjarta
hans er næst, og miðla síðan félögum sínum niðurstöðunm 1
sem fullkomnustu formi á félagsfundum. Hvert ungmennafélaS
ætti þannig smám saman að eignast ritgerðasafn um hvað
eina í sveitinni sinni. Hentugt væri að hafa það í tímarits*
formi og væri alt vandlega fært inn í bækur. Jafnframt astti
félagið að eiga sér náttúrugripasafn, að minsta kosti steina-
safn og grasa, er gæti orðið góð hjálp við barnafræðsluna.
Með því að vinna svona af ráðnum huga að því að 9era
sveitina sína í öllum efnum að andlegri eign sinni, með ÞV1
að verða andlegir landnámsmenn í heimahögunum, mundu
æskumenn þessa lands vaxa að visku og þroska og lífsgl^*
og aldrei skorta efni til sameiginlegra skemtana á fundurn-
Sannleikurinn er sá, að vér leitum oft langt yfir ‘skamt. Alt 1
kringum oss eru óteljandi rannsóknar-, fræðslu- og unaðarefm.