Eimreiðin - 01.01.1924, Qupperneq 116
112
í BRAGALUNDI
EIMRElÐlN
það ljóst, sem vér hugsum. En skáldið segir oss það óhikaö-
Það lýsir fyrir oss hinu háleita takmarki voru og eilífa
Því hefur verið haldið fram, að snillin væri fólgin í því, a^
undirvitundin brytist fram í dagsljósið og flytti upp úr fylSsn'
um sálarlífsins það, sem lægi hálffætt og falið í hugum fjölá-
ans. Hversu haldgóð sem sú tilgáta er, þá er hitt víst, a^
skáldskapurinn gerir ekki að eins lífið fjölbreyttara, heldur
hjálpar hann oss að finna samræmi í hinum margvíslegu ósaW'
stæðum þess. Skáldið sýnir oss með andagift sinni óvæuta
fegurð álstaðar í óendanlegri fjölbreytni náttúrunnar, opinberar
oss dýrð mannlífsins og finnur lausn á hinum margvísleSu
ráðgátum, sem umlykja oss á alla vegu. Skáldið er bæði dul'
spekingur og spámaður. Hann þýðir hinar römmu rúnir til'
verunnar og hrópar þýðingu þeirra út meðal lýðsins. Það ma
til sanns vegar færast um skáldið, að það láti blinda sjá oS
daufa heyra, hræri tungu málleysingjans til lofsöngs og la*1
hinn lama taka til fótanna af fögnuði.
í þriðja lagi þeyta skáldin herlúðra og kalla menn til orustu-
Þau eru hinir óviðurkendu löggjafar heimsins. Þau eru máttuS-
af því að þau boða hin eilílfu lögmál. Almenningi er hætt
að láta leiðast af falsspámönnum, hætt við að láta villa sér sým
hætt við að láta fordóma og persónulegan fjandskap hlaupa
með sig í gönur. En þrátt fyrir það, þó að þetta og annað eins
eigi sér víða stað í heiminum, er ástandið ekki eins slæmt ems
og það virðist vera á yfirborðinu. Það er ávalt til hugrakkur
hópur manna, sem sér í gegnum blekkingarvefi samtíðar sinnar
og leggur réttlátan mælikvarða á ástandið. Þessir menn sja
meinin og benda á lækninguna. Smátt og smátt draga þeir að
sér athygli fjöldans, því þrátt fyrir fordómana er þó eðlisávisun
lýðsins heilbrigð og segir til sín fyr eða síðar. Skáldið v»
bæta meinin, en flekkar aldrei sverð sitt í saklausu blóði. Það
kveður sér hljóðs, blæs herlúður sinn svo heyrist of Iönd öll-
Og múrarnir hrynja; járnhliðin sundrast.
Skáldið er ætíð brautryðjandi. Rödd hans er rödd hrópand'
ans í eyðimörku. Hann er fæddur leiðtogi þjóðanna.
Sm. 5-