Eimreiðin - 01.07.1955, Síða 104
248
UM ÖRNEFNI I FLJÓTSDÆLU
eimre®ií1
Þegar Grímur Droplaugarson fór að leita hefnda eftir Helga
bróður sinn, er ekki annars getið i ferð þeirra, en að þeir koinR
að Rangá, og „lögðust yfir ána með Þorkel trana, ok komu a
þann bæ, er á Bakka heitir fyrir austan fljótit“. Það mundi
réttara, að þeir lögðust yfir fljótið, þvi ekki þurftu þeir að fara
suður yfir Rangá. Fljótsbakki heitir enn bær fyrir austan fljot'
ið móts við Rangá. Þaðan hafa þeir farið út með fljóti „til Odd-
marslækjar fyrir vestan Eiðaskóg“. Sá lækur heitir nú Fiski'
lækur og rennur úr Eiðavatni vestur í fljótið. Um annan 1®^
getur ekki verið að gera í Eiðalandi. Þar er líka afskekkt og hæg1
að færa moldina út i lækinn, án þess á beri.
Ekki hefur Grímur þorað að fara sömu leið til baka eftir vig
Helga, því þá leið mundi helzt vera leitað. Hann fer því upp
að Höfða á Völlum, þar yfir fljótið og þaðan vestur að brú a
Jökulsá. Eflaust hefur brú sú verið nærri því, sem hún er nU:
og miklar likur til, að það hafi verið steinbrú eins og sagt el
að hafi verið hjá Brú á Jökuldal, til skamms tíma. „Nú leltj
uðu þeir sér ráðs, er eptir voru; tóku þat ráð at halda vörð a
vöðum öllrnn ok sitja við brúar á Jökulsá.“ Af því má sjá, a^
brýrnar hafa verið fleiri en ein. En þeir gáðu þess ekki, a
Grímur var færari sundmaður en flestir aðrir. Hann synti yfJ1
Jökulsá með félaga sína, „sínu sinni hvorn“, skammt fyrir utau
brúna. Þar heitir enn Grímsbás að austanverðu við ána, þar seu1
fyrst verður komizt ofan í gljúfrin. En ótrúlegt er, að nokku1
maður hafi synt þar yfir fleiri ferðir, því áin fellur þar u®
hvítfyssandi boðaföllum milli kletta.
Þaðan fóru þeir til Krossavíkur. Hátt hamrafjall er upp 11
bænum í Krossavík, sem mun hafa verið kallað Snæfell í f0111
öld, en nú er það kallað Krossavikurfjall. Efst í því er harrua
belti hátt, en upp þaðan liggur gjá, sem kölluð er Grimsgjá, °S
er sagt, að Grímur Droplaugarson hafi farið þar upp, en nu
er
ið
það fárra manna færi. Má vera, að fylgsni Gríms hafi vel1^
uppi á fjallinu fyrst, því sagan segir, að hann hafi fært sig «
fjallinu niður á hjalla einn — á ofanverðum grösum“, þe§af
hausta tók. „Þat er nú kallat at Grímsbyggðum“. Þar er uu
kallaður Grímshjalli.
Þá eru taldir sögustaðir þeir, er ég þekki í Fljótsdælu. Á upP